Ég hvet öll sem hafið áhuga á lækkun eldsneytisverðs til að lesa þennan pistil vandlega. Sömuleiðis alla bílstjóra og aðra sem hafa lifibrauð sitt af flutningum. Nú verður afhjúpuð ótrúleg hræsni Samfylkingarinnar í eldsneytismálum.
Sigurjón Þórðarson félagi minn, skrifar góða kjallaragrein í DV í dag. Hún ber titilinn "Samfylkingin æsti til uppreisnarinnar".
Tilefnið er mótmæli vörubílstjóra sem loksins eru farin að bíta á silkihúfur þessa lands þegar formenn stjórnarflokkanna neyddust til að labba milli húsa í gær. Sem var náttúrulega alveg skelfilegt og augljóst að forsætisráherra gat vart á heilum sér tekið í kvöldfréttum gærdagsins! Sagði með þjósti að ekki væri hægt að taka mark á mönnum sem brytu af sér en gleymdi þá væntanlega að hugsa til sjálfs sín. Guðmundur Gunnarsson benti á þetta í þessum pistli hér á Eyjunni. Sjálfum varð mér hugsað til úrskurðar mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna varðandi kvótakerfið, en ekki er að sjá að ráðherrar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar liggi svefnlausir á næturna yfir honum.
Í kjallaragrein sinni rifjar Sigurjón upp að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi á síðasta kjörtímabili flutt sérstaka tillögu um lækkun olíugjalds. Ég fór á stúfana nú í morgun og skoðaði þing"afrek" Samfylkingarinnar í málum sem tengjast álögum á eldsneyti á síðasta kjörtímabili. Og af nógu er að taka. Bæði þingmálum og ræðum þar sem froðusnakkarar Samfylkingar á þingi fóru hamförum í ómarktæku lýðskrumi sem við sjáum í dag að miðaði bara að því að blekkja vörubílstjóra og íbúa á landsbyggðinni til að kjósa sig.
Hér er frumvarp um lækkun olíu- og bensíngjalds sem þingmenn Samfylkingar fluttu í upphafi þings haustið 2005.
Takið eftir því að einn flutingsmanna var Kristján Möller sem nú er samgönguráðherra. Hann talaði mikið um flutningskostnað og skatta á olíur og bensín. En það var nota bene, áður en hann varð ráðherra og komst að kjötkötlunum. Hér er bútur úr ræðu hans í desember 2005:
"Það er dapurlegt að ríkisstjórnarflokkarnir skuli aðeins hafa notað það rétt hálfum mánuði fyrir alþingiskosningar 2003 að tala um nauðsyn á lækkun flutningskostnaðar. Eftir kosningar, eftir endurnýjað umboð illu heilli, hafa stjórnarflokkarnir ekkert annað til ráða en að hækka álögur á flutningafyrirtæki sem gerir það að verkum að flutningsgjöld hafa hækkað. Þetta íþyngir atvinnurekstri á landsbyggðinni mjög mikið, sama hvort það er flutningur á fiski eða öðrum vörum til iðnaðarframleiðslu, og skekkir samkeppnihæfni fyrirtækja á landsbyggðinni gagnvart höfuðborgarsvæðinu og gerir það að verkum að fyrirtækin hafa nánast ekki úr neinu að spila. Ég hef séð hrikalegar tölur um flutningskostnað hjá kjötiðnaðarfyrirtækjum sem ég hef áður tekið hér sem dæmi þar sem tvö fyrirtæki eyða upp undir 100 millj. kr. í flutningsgjöld til að koma vörum sínum á markað á stórhöfuðborgarsvæðinu. Ríkisstjórnarflokkarnir halda enn þá áfram að hækka skatta af flutningastarfsemi sem leiðir til svo hárra flutningsgjalda".
Smellið svo hér til að skoða þingmál Ingibjargar Sólrúnar og Co.
Hér er bútur úr ræðu sem hún flutti 2. maí 2006:
"Nú er ekki svo að skilja að ríkissjóður yrði eitthvað á berum bökkum þótt hann þyrfti aðeins að gefa eftir í þessum gjöldum vegna þess að tekjur ríkissjóðs af bensíni eru auðvitað umtalsverðar, sérstaklega nú þegar verðið er að hækka eins mikið og raun ber vitni. Mér skilst að tekjur af virðisaukaskatti núna, miðað við tekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti vegna bensíns árið 2005, séu um 740 millj. kr. í ríkissjóð yfir eitt ár. 740 millj. kr. auknar tekjur af virðisaukaskatti yfir eitt ár. Þar af leiðandi er um verulega tekjuaukningu að ræða fyrir ríkissjóð. Meðalverð á 95 oktana bensíni á liðnu ári var um 107,15 kr. á lítra en er núna 126,10 kr. á lítra. Meðalverðið fyrstu fjóra mánuðina í ár, þ.e. árið 2006, er 114,80 kr. á lítra. Ef það meðalverð héldist út árið gæfi það ríkissjóði 440 millj. kr. í auknar virðisaukaskattstekjur yfir árið samanborið við tekjurnar 2005. Þannig að jafnvel þó að verðið væri nú lækkað úr þessum 126 kr. í bara það meðalverð sem var yfir fyrstu fjóra mánuðina, 114,80 kr., þá yrði samt um verulega tekjuaukningu að ræða hjá ríkissjóði".
Smellið hér til að lesa ræðuna í heild sinni.
Með því að smella hér getið þið skoðað allar ræður og þingmál þar sem orðið "olíugjald" kom fyrir hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur á síðustu fimm löggjafaraþingum.
Og með því að smella hér er hægt að sjá niðurstöður sömu leitar þegar Kristján Möller núverandi samgönguráðherra Samfylkingar á í hlut.
Ræðurnar sem þetta fólk flutti - Jesús minn góður. Maður þarf að hafa minnst tíu vasaklúta við hendina þegar þau fara á flug og lýsa öllu óréttlætinu kringum skattlagningu á olíu og bensíni hér landi.
En nú eru þau í ríkisstjórn.
Allt gleymt?
Ó nei.
Ég óska vörubílstjórum velfarnaðar í mótmælum þeirra.
þriðjudagur, 8. apríl 2008
Hræsni og svik Samfylkingar í olíu og bensíni
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Var ekki einhver lækkun af einhverju gjaldinu um síðustu áramót ?
Það getur varla hafa verið mikið fyrst við sjáum í dag mestu alþýðumótmæli um margra ára skeið - og það þegar sjálfur "jafnaðarmannaflokkurinn" er í ríkisstjórn.
Skrifa ummæli