Hæstvirtur iðnaðar- og orkumálaráðherra Össur Skarphéðinsson sýnir mér þann heiður að tileinka persónu minni heilan bloggpistil af hans hálfu.
Ég brosi í kampinn við lesturinn. En það er svo sem rétt að ég er ekkert hættur í pólitík, þó ég hafi tekið smá hlé frá störfum sem þingmaður.
Ímyndunarafli ráðherrans er við brugðið. Ég ætla svo sem ekki að elta ólar við hann. Minnist þess oftast með ánægju að hafa starfað með honum í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili, þó ég verði að segja að frammistaða hans sem ráðherra hafi valdið mér vonbrigðum.
Það er þannig með Össur og aðra ráðherra að um leið og þau settust í ráðherrastólana þá hentu þau í ruslið flestu eða öllu sem þau stóðu fyrir pólitískt. Samfylkingin er ekki að standa við nein af þeim prinisippmálum sem henni voru svo heilög á síðasta kjörtímabili. Hér er nóg að nefna Írak og virkjanamálin.
Og enn bíðum við niðurtöðunnar varðandi lagasetningu um eignarhald á vatninu - vökva lífsins.
Össur er búinn að setja málið í nefnd.
Þetta var mjög umdeilt mál þegar það kom fram í þinginu árið 2006. Þegar frumvarpið var lagt fram fór ég í ræðustól og hélt ræðuna sem sjá má hér undir. Þarna var gefinn tóninn í upphafi mikillar orrustu sem lyktaði með því að okkur í stjórnarandstöðunni tókst að stoppa málið - í bili að minnsta kosti.
Vonandi sér Össur þessa færslu - og vonandi skoðar hann ræðuna hér fyrir neðan og minnist þess að við börðumst saman í þessu máli - ég og hann og fleiri. Og vonandi minnist hann orða sinna úr þessari orrahríð. Geri hann það ekki mun ég passa upp á að minna hann á þau:
miðvikudagur, 16. apríl 2008
Herrann Össur og vökvi lífsins
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hvað meinar þú með að þú hafir "tekið smá hlé frá störfum sem þingmaður"? Voru það ekki kjósendur sem neituðu að framlengja við þig ráðningarsamninginn?
Er þér mikið sammála með m.a Samfylkinguna og það að um leið og ráðherrastóllinn var í höfn að þá gleymdist allt sem flokkurinn stóð fyrir. Er búinn að skrifa mikið um þetta.
Bestu kveðjur
Einar Einarsson
Skrifa ummæli