miðvikudagur, 23. apríl 2008

Gas! Gas! Gas!



Síðasta færsla mín skrifuð hér á Eyjunni í gærkvöld fjallaði um sturlaðar samgöngur undir stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.

Ég átti samt aldrei von á því að í morgun myndi skapast umsátursástand á einum fjölfarnasta þjóðvegi landsins með fjöldahandtökum og liðsafnaði sérsveitar lögreglu.

Og illa bregður manni við að horfa á íslenskan lögreglumann öskra ítrekað "Gas!, Gas!, Gas!" á meðan hann sprautar einhverjum viðbjóð í andlit fólks.

Þetta ER sturlun.

15 ummæli:

egillm sagði...

Reyndar öskraði hann nokkrum sinnum áður en hann sprautaði því eins og ég sá þetta í sjónvarpinu. Þannig fólk fékk góða aðvörun áður en piparúðanum var sprautað.

Unknown sagði...

Var það ekki fórnarlambið sem öskraði ?

egillm sagði...

palli: Myndatakan sýndi lögreglumanninn öskra Gas! Sá sem skilur ekki aðvörunina er bara að bíða eftir að láta sprauta á sig.

Nafnlaus sagði...

Þetta er bilun. Mér er alveg sama hvort löggan hafi argað gas-gas fyrir eða eftir að hún sprautaði. Það á ekkert að sprauta táragasi eða piparúða að nauðsynjalausu. Sekta mennina bara eins og gengur með þá sem fremja umferðarlagabrot.

Nafnlaus sagði...

Þetta var ekkert að nauðsynjalausu. Fréttir RÚV sýndu það. Bílstjórarnir réðust að lögreglunni og hún þurfti að ná stjórn á aðstæðunum og þetta var það eina sem hægt var að gera.

Nafnlaus sagði...

Samt magnaður skítur hvað fréttastofa stöðvar 2 var sein að taka við sér, RÚV tók þá í bakaríið... misvitrir plötusnúðar á Bylgjunni gátu heldur ekki höndlað fréttirnar...

Nafnlaus sagði...

Hvað átti lögreglan að kalla? Agúrka, agúrka, agúrka eða Magnús Þór Hafsteinsson, Magnús Þór Hafsteinsson,Magnús Þór Hafsteinsson?
Þeir sem voru þarna fremstir gátu átt von á að lenda í einhverju. Ef þú ferð að brennandi húsi þá vita þeir sem eru með fullu viti að hættan á þvi að brenna sig eykst verulega miðað við það að horfa á Bubba byggir heima á laugadagsmorgni. Núna koma lýðskrumararnir fram hver af öðrum og reyna að slá sig til riddara í augum misviturra einstaklinga sorglegt dæmu um það er Magnús Þór Hafsteinsson.

Unknown sagði...

Sæll félagi, ég var einn af þeim sem voru settir í járn.

Þetta var aðför að frelsi Íslendinga og það kæmi mér ekki á óvart að þetta hafi verið skipun að ofan.

Í dag átti aldeilis að sýna þjóðinni hver það er sem ræður.

Nafnlaus sagði...

Sæll Viðar
Sem betur fer eru völdin ekki í höndum manna ein og þinna, stjórnlaus skríll. Þegar geimflaugasérfræðingar á borð við ykkur stofna almannaheill ítrekað í hættu þarf því miður að taka í taumana, allir foreldrar vita það að þegar börnin (les: trukkabílstj.) eru farin að hegða sem óvitar þarf að leiðbeina þeim á ákveðinn hátt. Þetta var sorgardagur fyrir þessa trukkakalla sem komu nú fram grímulausir sem vitfirrtur skríll.

Magnús Þór sagði...

Undarlegt að vera skammaður fyrir það af einhverjum nafnleysingja hér, að lýsa því að manni sé brugðið við að sjá lögreglumenn sprauta piparúða í andlit borgaranna í beinni útsendingu í sjónvarpinu.

Ég held að ég hafi ekki verið einn um það. Miklum meirihluta þjóðarinnar var brugðið.

Og þetta að orga Gas! Gas! Gas! er ekki sérlega gáfulegt af hálfu löggæslumanna. Fyrir það fyrsta þá var þetta ekki einu sinni gas, og í öðru lagi þá hefur notkun gass á manneskjur yfir sér afar neikvæðan blæ svo ekki sé nú meira sagt.

Í svona aðstæðum eru menn að feta hárfína línu og í raun komnir á ystu nöf. Ekkert má út af bregða. Ég öfundaði lögreglumennina ekki af þeim aðstæðum sem ríktu í gær. Þeirra staða var mjög erfið og sýndi hve krefjandi og vandasamt starf löggæslumanna getur verið.

Atburðir gærdagsins voru slæmir.

Nafnlaus sagði...

Ég tek undir þetta Magnús, þessi viðbrögð lögreglu voru fáránleg. Í seinna skiptið sem þeir spreyjuðu gasinu að þá stóð fólk þarna í rólegheitunum fyrir aftan borðann og allt í einu fengu þau piparúða í augun, konur og krakkar sem voru þarna að sýna stuðning.
Ljótt lögregluofbeldi og þetta á ekki að líðast. Her Björns Willis sýndi hvers hann er megnugur þarna og fékk ´marga á móti sér.

Bestu kveðjur
Einar Einarsson

Nafnlaus sagði...

Það er vinnuregla hjá lögreglunni að gefa viðvörun áður en það er sprautað piparúða/táragasi, og gefa þannig fólki tækifæri á að forða sér. Þú hefðir sennilega kvartað mun meira, hefðu þeir ekki gefið neina viðvörun og sprautað þessu bara út í loftið.

Hugsaðu aðeins áður en þú ferð að slá þig sem einhvern riddara frjálshyggjunar með því að setja niður í við Lögregluna, sem hefur það hlutverk að varðveita frelsi borgaranna með því að viðhalda öryggi.

Atvinnubílsjórar er ekki yfir lög og reglu hafnir

egillm sagði...

"Og þetta að orga Gas! Gas! Gas! er ekki sérlega gáfulegt af hálfu löggæslumanna. Fyrir það fyrsta þá var þetta ekki einu sinni gas, og í öðru lagi þá hefur notkun gass á manneskjur yfir sér afar neikvæðan blæ svo ekki sé nú meira sagt."

Síðast þegar ég vissi þá var þetta táragas. Orðið er vissulega neikvætt - enda var tilgangurinn að fá fólkið burt af götunni.

Mér finnst annars fyndið hvað fólk getur verið fljótt að dæma þetta þegar það var ekki einu sinni á staðnum. Það er ekki sambærilegt að sjá video af einhverju og að vera á staðnum. Ég var vissulega ekki þarna en mér finnst soldið kjánalegt að gagnrýna lögregluna alveg einhliða. Þeirra vinna er auðvitað að sjá til þess að fólk fari eftir lögum - sem þetta fólk var hreinlega ekki að gera.

Andri sagði...

Egillm er útum allt á netinu að verja aðgerðir lögreglunar. Hvað gerir þú með leyfi herra Egill?

Reiðin skein úr augum lögreglumannsins sem labbaði þarna um hálf sturlaður öskrandi útí loftið á mjög ógnandi hátt. Þetta er fyrst og fremst spaugilegt en líka niðurlægjandi fyrir viðkomandi lögreglumann sem er nú orðinn hálfgert legend fyrir vikið. Allir eiga eftir að muna eftir þessum.

egillm sagði...

"Egillm er útum allt á netinu að verja aðgerðir lögreglunar. Hvað gerir þú með leyfi herra Egill?"

Ég starfa ekki fyrir lögregluna ef það er það sem þú heldur.

"Reiðin skein úr augum lögreglumannsins sem labbaði þarna um hálf sturlaður öskrandi útí loftið á mjög ógnandi hátt."

Það má auðvitað túlka þetta á afstæðan hátt. Ég gæti notað önnur lýsingaorð sem kæmu betur út. Þetta segir einfaldlega ekkert til um það hvort hann hegðaði sér eðlilega eða ekki.

Ég er enginn talsmaður lögreglunnar. Almennt er ég lítið hrifinn af valdbeitingu lögreglu. Ég er einfaldlega að reyna skoða þetta mál út frá þeirra sjónarhorni. Það er ábyggilega ekki létt að takast á við fólk sem er æst og neitar að fara eftir lögum.

Það má samt ekki gleyma því að þessir lögreglumenn eru bara venjulegt fólk eins og aðrir og þeir þurfa að sjá til þess að fólk fari eftir lögum.

Hafirðu eitthvað út á að það að setja þá þarftu að rökræða við þá sem setja lögin en ekki þá sem fara eftir þeim.