Fréttin í dag um leiguflug formanna ríkisstjórnarflokkanna með embættisfólki og handvöldum blaðamönnum var svo lygileg að ég átti bágt með að trúa henni.
En þetta er víst rétt.
Enn eina ferðina fremja þau Geir og Ingibjörg svo slæma "blöndera" að maður grettir sig ósjálfrátt og lokar augunum við að sjá þetta. Ég á reyndar hálf erfitt með að trúa þessu enn þá. En Pétur Gunnarson segir í athugasemdum við þessa frétt á Eyjunni að þetta sé EKKI aprílgabb. Maður hlýtur að treysta því.
Úff.
Þetta er ekki einungis meiriháttar klúður fyrir stjórnmálamennina og ráðuneytisfólkið, heldur líka fyrir þá fjölmiðla sem hafa þekkst boðið um að vera með. Hlutverk fjölmiðla er meðal annars að halda gagnrýnum sjónum á stjórnvöldum á hverjum tíma.
Nokkar spurningar koma í hugann:
1. Sáu fréttastjórar viðkomandi fjölmiðla ekkert athugavert við það að forkólfar ríkisstjórnarinnar væru að leigja stóra þotu til að láta skutla sér á NATO fund (ég meina, - bara út frá umhverfissjónarmiðum, kreppuástandi í þjóðfélaginu og fleiru)?
2. Hringdu engar aðvörunarbjöllur varðandi það að stjórnmálamenn væru að bjóða fjölmiðlafólki með sér í svona lúksusflugferð?
3. Hvað með það sem kallað er heilindi (integrity) frétta- og blaðamanna? Hvernig getum við treyst því að þessir fjölmiðlar flytji okkur raunsannar fréttir af atburðum þegar fréttamenn þeirra ferðast frítt á milli í lystisemdum ásamt þeim stjórnmálamönnum sem eru í aðalhlutverki í væntanlegum fréttaflutningi? Í boði ráðherranna.
Þetta er í raun svo galið að ég verð að segja aftur - ég á erfitt með að trúa þessu...
Er eintómt samansafn af vitleysingum að stjórna þessu landi?
þriðjudagur, 1. apríl 2008
Fáránlegasta aprílgabbið var satt??!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Svei mér þá alla mína daga. Þó ég sé búinn að blogga um þetta tvisvar í dag þá trúði ég þessu varla fyrr en ég skoðaði Kastljósið á netinu rétt áðan. Geir Haarde var þar í drottningarviðtali við Sigmar.
Það er óborganlegt að sjá forsætisráðherrann lýsa því hvernig sé nú að fara út í hinn hættulega stóra heim þar sem finnast jafnvel flugstöðvar sem “eru í klessu” svo hann og Ingibjörg geta átt á hættu að komast ekki leiðar sinnar.
Svo er það þetta með dauðann tíma í ferðalögum. Þvílíkt bull. Það er hægt að vinna helling á ferðalögum. Til dæmis gefst næði til að lesa sér til um hluti sem annars væri vart tími eða næði til. Ég geri það iðulega og síðast nú í morgun þegar ég fór með strætó milli Akraness og Reykjavíkur. Komst gegnum tvo kafla í bók sem ég er að lesa um rússneskt þjóðfélag mér til gagns í mínu starfi í pólitík.
Kannski maður ætti að bjóða Geir með sér í strætó og kenna honum að ferðast og vinna samtímis?
Nú líður ekki á löngu þar til Borgarstjórn fær sér einkaþotu líka og auðvitað Forsetinn líka, ekki gengur að hafa þetta fólk allt þotulaust.Eitthvað verður það að hafa
fyrir stafni.Kannski bjargar það Íslandi ef þetta fólk er sem lengst og oftast í burtu
Skrifa ummæli