Ef þessi frétt er ekki hreinlega aprílgabb þá vakna spurningar.
Hér eru nokkrar:
1. Hvað varð um allar ræður Samfylkingarinnar um gróðurhúsaáhrif og Fagra Ísland?
2. Hvaða blaðamenn fá að fara með, og hvernig voru þeir valdir?
3. Borga fjölmiðlar þeirra fullu verði, eða bjóða Geir og Ingibjörg (les: ríkið)?
Annars hefði ég nú haldið að Samfylkingin í sínum pólitíska rétttrúnaði ferðaðist helst með Amish Airlines, ekki síst svona miðað við allar kosningayfirlýsingarnar um Fagra Ísland.

4 ummæli:
Magnús - það er 1 apríl!
Já, ég veit, enda tilgreini ég það í upphafi.
Það er eins gott að þú sért ekki að stjórna landinu Magnús minn.
Það er einfaldlega bara miklu ódýarara og hagkvæmara að gera þetta svona. Það eru um 10 manns í þessari sendinefnd og að kaupa flug með farþegaflugi til Köben eða London og þaðan til Búkarest og til baka er bara miklu dýrara en að leigja Dornier 328 í beinu flugi. Icejet er Íslenskt flugfélag og mér þykir gott að Íslenska ríkið sé að versla við þá þegar svona margir eru að fara í eina ferð, hagkvæmt og styrkir eitthvað annað fyrirtæki en Icelandair...
Ég hef hvergi gert athugasemdir við kostnaðinn mældan í peningum. Það reiknidæmi hef ég einfaldlega ekki séð. Má vel vera að þetta komi svipað út og ef farið hefði verið með áætlunarflugi.
Málið í þessu er það að þessi ferð sendir út öll röngu merkin þegar litið er til trúverðugleika ráðherranna, ráðuneytisfólksins og fjölmiðlanna sem eru svo brenglaðir að þiggja boð um að fljóta ókeypis með.
Ástæður þessa eru augljósar.
Skrifa ummæli