mánudagur, 14. apríl 2008

Fargo Iceland (pop. 310.000)

Ég sé að Pétri Gunnarssyni líður eins og hann sé staddur í bíómynd eftir Quentin Tarantino.

Skil hann vel.

Eftir daginn í dag dettur mér helst í hug að íslenskur veruleiki sé að verða eins og í Fargo - mynd hinna eitursnjöllu Cohen bræðra.

Kastljósviðtölin við Pólverjann og svo strax á eftir við lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins er klikkaðasta sjónvarpsefni sem ég hef séð lengi.

Þjóðfélagið er firrt.

2 ummæli:

Unknown sagði...

Þetta er geggjun...

Nafnlaus sagði...

Ég missti af þessu viðtali en það var einn sem hringdi í mig í kvöld og sagði að þetta hefði verið toppurinn á drottningarviðtölum Kastljóssins.