"Hvurt í logandi", hugsaði ég þegar ég sá sjónvarpsfréttirnar áðan þar sem glaðbeitt fólk tók fyrstu skóflustungu að nýju álveri í Helguvík.
Ég sá ekki betur en að einn þeirra sem mokuðu sig þar ofaní jörðina væri Björgvin G. Sigurðsson frá Skarði í Gnúpverjahreppi. Viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar.
Og ég varð hugsi.
Því ég man svo vel eftir greininni sem hann skrifaði rétt fyrir síðustu alþingiskosningar. Ég hef stundum tekið hana fram og lesið mér til hugarhægðar á svörtum stundum þegar ég hef leyft mér að efast um heilindi "jafnaðarmannaflokksins" í umhverfismálum.
Og í hvert sinn sem ég hef lesið upphafsorð þeirrar greinar þá hef ég varpað öndinni léttar. Umhverfismálum á Íslandi hlýtur að vera borgið á meðan "jafnaðarmannaflokkurinn" er í ríkisstjórn.
Hugsjóninn um "Fagra Ísland" lifir.
Víst gerir hún það. Sjáiði bara. Björgvin skrifaði þetta hér fyrir neðan. Og auðvitað trúum við honum og flokknum hans.
Jafnvel þó hann hafi stungið niður skóflu í dag.
Eða.....?
Hér er það sem Björgvin skrifaði:
Grænir og góðlegir storma þeir nú fram riddarar stóriðjunnar. Nú skal skríðast grænu, ekki bleiku einsog í fyrra, og blekkja sig í gegnum kosningabaráttu næstu ellefu vikna.Ellefu erfiðar vikur þar sem ríkisstjórnin verður tekin til bæna vegna heimsetsins í auknum ójöfnuði, mannréttindabrotunum á gamalmennumog öryrkjum og stóriðjustefnunnnar.
Þetta verður þungt en hvað getur Sjálfstæðisflokkurinn gert til að redda málum?Kannanir erfiðar og Geir týndur. Nú eru góð ráð dýr en fjöldi litbrigðanna er mikill. Lengi má yfir fálkann mála. Bara að hann verði ekki skræpóttur.
Jú einsog Mogginn gerðu á sinni nýgrænu grundu; mála fálkann grænan. Gamli góði Villi málaði fuglinn bleikan í fyrra og hann er núna borgarstjóri. Endurtaka
leikinn í takt við tímann.Herdeild græna fálkans stormar nú fram. Búið að krýna Guðlaug Þór og Illuga Gunnars til forystu. Nú er bara að fá fólkið til að trúa. Það gæti orðið þrautin þyngri þar sem pólitískur hreinsunardagur er framundan. Þar gæti íhaldið orðið illa úti.
Skræpótti fuglinn
Það er fagnaðarefni að náttúruverndin fær vægi í aðdraganda kosninga. Það er komin tími til enda umhverfishyggja útbreidd á Íslandi og sker þvert á alla flokka.
Samfylkingin hefur um árabil staðið fyrir vandaðri stefnumótun í umhverfismálum. Sú stefna leit dagsins ljós undir nafninu Fagra Ísland í haust og markaði tímamót í pólitískri orðræðu um umhverfismál og náttúrurvernd.
Við sem berjumst fyrir náttúruvernd og hófsamri nýtingu á orkulindum þjóðarinnar stöndum nú á tímamótum.
.....o. s. frv.
--------------
Á ljósmyndinni sem fylgir er það Björgvin á tímamótunum sem hann átti við í greininni, með skófluna þriðji frá vinstri, auðkenndur með rauðum hring. Hann er þarna í félagsskap ráðherra og bæjarfulltrúa flokks "skræpótta fuglsins". Myndin var tekin í Helguvík nú síðdegis.
3 ummæli:
Hér er önnur grein eftir Björgvin frá því skömmu fyrir síðustu þingkosningar. Þetta er óborganlegt og þessu verður að halda til haga:
-------------------------
Ný hækja eða hólmganga við Sjálfstæðisflokkinn
Birtist í Morgunblaðinu.
Samfylkingin var stofnuð með sögulegt hlutverk að markmiði: Að sameina jafnaðarmenn í einum flokki og mynda raunverulegan valkost við Sjálfstæðisflokkinn. Binda þar með endi á langa valdatíð hægrimanna í íslenskum stjórnmálum og breyta samfélaginu í anda jafnaðarstefnunnar.
Vegna sundrungar á vinstrikantinum og einingar hægrimanna í Sjálfstæðisflokknum hefur sigurganga hans verið löng og samfelld. Sambærileg við þá stöðu sem jafnaðarmenn hafa á Norðurlöndunum. Öllum nema Íslandi þar sem jafnaðarmenn voru í sjötíu ár sundraðir í mörgum flokkum í stað þess að mynda eina breiðfylkingu.
Á hinum Norðurlöndunum er það undantekning að hægrimenn komist til valda. Hér er það nánast regla að Sjálfstæðisflokkurinn sitji við völd.
Rofar til vinstri og rógur íhaldsins
Veldi íhaldsins virtist engan endi ætla að taka. Síðan fór að rofa til. Reykjavíkurlistinn vann sögulegan sigur árið 1994 og árið 1999 tókst að mynda kosningabandalagið Samfylkinguna með þátttöku allra fjögurra flokkanna til vinstri og brautin var rudd.
Í fyrsta sinn fékk flokkur vinstra megin við miðju síðan yfir 30% atkvæða sem var fylgi Samfylkingarinnar í kosningunum 2003. Alvöru breiðfylking vinstra megin við Sjálfstæðisflokkinn var orðin að raunveruleika og veldi hans ógnað í fyrsta sinn fyrir alvöru.
Í kjölfarið hafa sjálfstæðismenn út um allt þjóðfélag kappkostað við að tala flokkinn og forystumenn hans niður. Af slíku kappi að einelti er eina orðið sem yfir ósköpin ná á köflum. Hámarki náði skítkastið þegar Davíð Oddsson eyddi átta mínútum af landsfundaræðu sinni árið 2002 til að rógbera og uppnefna Össur Skarphéðinsson, þáverandi formann Samfylkingarinnar.
Rógurinn bítur og þeir ná árangri sjálfstæðismennirnir. Það vita þeir og ganga vaskir til verka. Nú sætir Ingibjörg Sólrún sömu kostum og Össur áður. Ötuð auri af íhaldinu hvar sem þeir koma því við og öll meðul notuð til að kjafta Samfylkinguna og formann hennar niður.
Samstarf við Sjálfstæðisflokkinn
Ógnin sem Sjálfstæðisflokknum stendur af Samfylkingu jafnaðarmanna er mikil. Bandalag jafnaðarmanna sem á möguleika á því að ná 30-40% fylgi er martröð íhaldsins og markar endi á valdaskeiði þeirra.
Með áralangri póltískri vinnu fjölda fólks tóks að sameina Alþýðuflokkinn, Alþýðubandalagið, Þjóðvaka og Samtök um Kvennalista í einum breiðum flokki. Stórum sósíaldemókratískum flokki að norrænni fyrirmynd í þeim tilgangi að breyta íslenska samfélaginu.
Það er þessvegna fráleit hugmynd sem nýverið kom fram í grein eftir Margréti Björnsdóttur á síðum Morgunblaðsins að það væri fýsileg hugmynd að stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokkks og Samfylkingairnnar komi til greina nú. Til hvers var þá sameinað? Var þá ekki alveg eins gott að starfa áfram í flokkunum fjórum og keppast um að komast í hlutverk hækju Sjálfstæðisflokksins eftir hverjar kosningar eins og var dapurlegt hlutskipti vinsriflokkanna á árum áður?
Sögulegt hlutverk Samfylkingarinnar
Í ljósi sögulegs hlutverks Samfylkingarinnar er samstarf við Sjálfstæðisflokk síðasti kostur flokksins. Neyðarkostur sem sérstakar aðstæður yrðu að kalla fram. Ekkert annað réttlætir slíkt samstarf þó að það sé auðvitað ekki útilokað komi slíkar aðstæður upp. Enginn sér hamfarir eða þjóðarvá fyrir.
Samstarf við Sjálfstæðisflokk myndi marka endi á drauminum um nýja breiðfylkingu sem leysti Sjálfstæðisflokkinn af hólmi. Samfylkingin væri þá ekki að uppfylla sitt sögulega hlutverk.
Umræðan er vissulega ágæt og það er skylda flokkanna við kjósendur að tala skýrt um samstarfskostina að loknum kosningum. Ekki síst næstu kosningum sem vonandi marka endi á samfelldri sextán ára valdatíð hægrimanna á Íslandi. Um leið nýtt upphaf að stjórn undir forystu jafnaðarmanna.
Samfylkingin hlýtur að eiga íslandsmetið í sviknum kosningaloforðum.
Um leið og sf var komin í ríkisstjórn að þá gleymdust öll loforð. Síðan svífa ráðherrarnir í valdavímu sinni gerandi hvern skandalinn á fætur öðrum.
Þessu liði verður mokað út úr ríkisstjórn í næstu kosningum. Best væri að senda þessa trúða í útlegð.
Hvað gera þeir af sér næst??
Bestu kveðjur
Einar Einarsson
Er ekki Björgvin bara þarna af því að hann ætlar að moka oní holurnar sem hinir grafa? :)
Skrifa ummæli