fimmtudagur, 5. júní 2008

Ísland í heimsfréttunum

Það er óhætt að segja að Ísland sé komið í heimsfréttirnar nú í sumarbyrjun, þegar ferðamannatímabilið er að ná hámarki.

Ríkisstjórnin með umhverfisráðherra Samfylkingarinnar í fararbroddi er heldur betur búin að útvega okkur fína auglýsingu. Þetta PR stönt að fella hvítabjörninn verður fært í annála og mun eflaust hafa jákvæð áhrif á efnahagsástandið hér á landi. Enda megum við ekki við fleiri áföllum og ímynd landsins geysilega dýrmæt - ekki síst með tilliti til hinnar óspilltu heimskautanáttúru sem við erum að reyna að selja erlendis.

Eða hvað?

Ef farið er inn á google.com leitarvélina og slegið inn orðunum "polar bear iceland" þá kemur upp aragrúi af vefslóðum. Nær allar fjalla um björninn sem felldur var í Skagafirði. Þetta eru fréttir um allan heim. Þetta er alls staðar. Ég byrjaði á að dunda við að setja inn hlekki í þessari færslu þar sem ég byrjaði fremst í niðurstöðum google, og færði mig svo niður. Þessir ensku hér fyrir neðan voru á fyrstu fimm síðunum og þá gafst ég hreinlega upp.....

Farið bara á google og sláið inn þessum leitarorðum. Þetta er með hreinum ólíkindum (smellið á nöfnin):

The Guardian
Yahoo! News
Daily Mail
Sidney Morning Herald
Ice News
IdeaLog
Seattle Times
Swiss Info
NewsCloud
ITN
Scotsman
San Jose Mercury News
The Sun
Deepikaglobal
NJ.com
news.com.au
digg.com
current
Thestar.com
news.nine.msn.com.au
International Herald Tribune
connect2earth
Yahoo Kanada
New York Times
Fox news
PRinside
KMTRnews
cjreport
news.com.au
youtube.com

...og svo framvegis.

Prófi maður á dönsku með því að skrifa "Island Isbjørn Skudt" þá koma margar fréttir í ljós. Mér sýnist að meðal Dana, Grænlendinga og Færeyinga sé almenn undrun yfir því að svona miklum sundkappa sem þessi ísbjörn hlýtur að hafa verið, skuli hafa verið mætt með kúlnahríð þegar hann kom á land eftir að hafa "unnið stórkostlegt dýraafrek með því að synda frá Grænlandi til Íslands". Kannski svolítið yfirdrifið, en samt augljóst að bangsinn er með samúðina sín megin - meira að segja á Grænlandi:

Sjónvarpsfréttir danska ríkissjónvarpsins
Grænlenska útvarpið
Ekstra Bladet
Berlingske Tidende
TV2

Og hér eru sýnishorn frá Noregi:

Dagbladet
Norska ríkisútvarpið
Verdens Gang
ABCTV
msn.video
TV2
dyrsrettigheter.no (norskir dýravinir hvattir til að senda mótmælapóst á umhverfisráðherra)

Aðrir geta svo gamnað sér við að slá inn þessum leitarorðum í google á hinum og þessum öðrum tungumálum, svo sem þýsku, spænsku og frönsku.

Við erum fræg! að endemum....þökk sé Samfylkingunni.

13 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Við hefðum líka orðið fræg ef hann hefði étið einhvern áður en hann var skotinn.

Nafnlaus sagði...

Hvað varst þú ekki á þingi á síðasta kjörtímabili?
Hvers vegna talaðir þú aldrei um viðbragsáætlun vegna hugsanlegra komu ísbjarna

Magnús Þór sagði...

1. Frægust og með jákvæðustum hætti hefðum við orðið ef við hefðum gert hið augljósa. Flutt dýrið aftur til heimkynna sinna á ísnum norður af landinu.

2. Ég var ekki umhverfisráðherra. Og það á ekki að þurfa viðbragsáætlanir til að geta framkvæmt hlutina nema Ísland sé orðið svo mikið kerfiskalla- og kellingaland að fólk þurfi að hafa það skrifað ofan í sig hvernig það eigi að bregðast við öllu milli himins og jarðar. En kannski er það svoleiðis hjá ráðherrum þessarar ríkisstjórnar. Það skýrir þá margt í því dæmalausa ráðleysi og dugleysi sem við höfum séð hjá þessu fólki síðustu 12 mánuði.

Nafnlaus sagði...

Þú horfðir greinilega ekki á hádegisviðtalið á Stöð2 s.l. miðvikudag. http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=STOD2&programID=e2721386-b309-4e1e-97eb-b4f889644c89&mediaSourceID=b8f1c4f7-43ac-4e2f-9ce2-3aba0cbc7559
Þetta er nefninlega ekki svona einfalt að taka svona björn bara upp í eitthvað net og skutla honum 40 sjómílur norður á hafísinn.

Magnús Þór sagði...

Auðvitað er það hægt, en margir hafa miklað það mjög fyrir alþjóð enda þarf að verja það em gert var. Sem var jú feikna mikið klúður eins og glöggt má sjá á alþjóðlegum fréttaflutningi sem hefur skaðað orðspor og ímynd landsins meira en dæmi eru um á seinni tímum.

Nafnlaus sagði...

Magnús hefur alveg rétt fyrir sér, nöldurseggirnir ykkar. Þið eruð örugglega í Samfylkingunni!

Nafnlaus sagði...

Fáeinar athugasemdir hérna.

1) Halló Magnús Þór! Ef ekki á að þurfa viðbragðsáætlanir til þess að geta framkvæmt hluti - um hvað í ósköpunum snerist þá megnið af athugasemdum þínum við komu flóttamanna til Akraness?

Bannnað að snúa út úr.

2) Ég er ekki hrifinn af Samfylkingunni, en er ekki algjört djók að ætla reyna gera þetta að flokkpólitísku máli? Svona í alvöru ?

Eða ert þú kannski bara algjört djók?

Kkv,

Einar Sig

Magnús Þór sagði...

Að bera þennan eina ísbjörn við móttöku á 60 flóttamönnum frá Írak sem væntanlega verða hér næstu árin og jafnvel lengur er svo fáránlegt að það er ekki svaravert.

En ég fór yfir það hvernig hefði mátt gera þetta í pistli hér sem var skrifaður sama dag og björninn var felldur:

1. Það átti að loka fyrir alla umferð almennings og gæta þess að ekki kæmist styggð eða hræðsla að dýrinu sem var alveg rólegt í upphafi.

2. Það átti að vera hægt að leggja út æti og þannig gefa birninum að éta, dópa hann niður og flytja á brott.

3. Ein af þyrlum Gæslunnar hefði getað tekið hann í neti niður á þjóðveginn.

4. Þar hefði mátt bíða með kassa, gám eða öflugt trébúr sem röskir smiðir hefðu sett saman í dag niður á Sauðárkróki.

5. Dýrið flutt á bíl til hafnar á Skagaströnd eða Sauðárkróki.

6. Þar um borð í fiskibát og sigla svo með bjössa norður að hafísröndinni og sleppa honum lausum þar.

-------------

Flokkspólitískt mál? Ég er bara að benda á að við sitjum uppi algerlega óhæfan umhverfisráðherra sem er búinn að fremja slík embættisafglöp og eyðileggja ímynd landsins á alþjóðavettvangi að henni er ekki treystandi.

Það er ekki mitt vandamál að hér liggur fyrir sú staðreynd að um er að ræða ráðherra Samfylkingarinnar, en það er sjálfsagt að benda á það.

Nafnlaus sagði...

Hæ aftur Magnús Þór!

"Ég var ekki umhverfisráðherra. Og það á ekki að þurfa viðbragsáætlanir til að geta framkvæmt hlutina nema Ísland sé orðið svo mikið kerfiskalla- og kellingaland að fólk þurfi að hafa það skrifað ofan í sig hvernig það eigi að bregðast við öllu milli himins og jarðar. En kannski er það svoleiðis hjá ráðherrum þessarar ríkisstjórnar"

"Að bera þennan eina ísbjörn við móttöku á 60 flóttamönnum frá Írak sem væntanlega verða hér næstu árin og jafnvel lengur er svo fáránlegt að það er ekki svaravert."

Æji plís.

Þú verður að ákveða þig. Erum við kellingar ef við þurfum "viðbragðsáætlanir til að geta framkvæmt hlutina" bara í sumum tilvikum?

Þarft þú ekki að vera samkvæmur sjálfum þér?

Einar Sig

Magnús Þór sagði...

Hvaða "viðbragðsáætlunum" fylgir "Einar Sig" þegar hann tjáir sig hér?

Nafnlaus sagði...

"Þú"

"Snýrð"

"Alltaf"

"Útúr"

"Þegar"

"Þú"

"Ert"

"Orðinn"

"Rökþrota"

"."

"Kær kveðja,"

"Einar Sig"

Nafnlaus sagði...

Uhhh var ekki bara til deyfilyf til að halda bangsa sofandi í 1 klst? hvað svo? henda í hann hunangi eða sultu og segja bara svona svona þetta var bara óvart???

Magnús Þór sagði...

Kalla það nú varla rökþrot þó ég hafni því að fara með umræðuna um þetta mál inn alls óskylt þema sem eru málefni flóttafólks frá Írak.