Hún er merkileg skoðanakönnunin á fylgi stjórnmálaflokka sem birt var í Noregi nú í kvöld. Þessi könnun er gerð fyrir norska ríkisútvarpið NRK.
Samkvæmt henni er vinstri stjórn sósíaldemókratans Jens Stoltenberg kolfallin. Flokkarnir sem mynda hana fengju aðeins 70 þingsæti. Borgaralegu flokkarnir sem eru í stjórnarandstöðu myndu ná 99 þingsætum.
Norski Verkamannaflokkurinn (Arbeiderpartiet), systurflokkur Samfylkingar hér á landi, mælist aðeins með 26,6 prósenta fylgi, og tapar verulega milli mánaða. Þetta er flokkur Jens Stoltenberg forsætisráðherra.
Framfaraflokkurinn (Fremskrittspartiet) er stóri sigurvegarinn í norskum skoðanakönnunum þessa dagana. Ég hef fylgst grannt með könnunum þar undanfarna mánuði. Þau hafa stöðugt verið að sækja í sig veðrið. Nú mælist Framfaraflokkurinn sem stærsti stjórnmálaflokkur Noregs með 30,8 prósenta fylgi. Með öðrum orðum - nær þriðji hver Norðmaður myndi kjósa Framfaraflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú.
Það eru söguleg tímamót þegar Framfaraflokkurinn mælist nú stærri en Verkamannaflokkurinn sem um áratuga skeið hefur verið stærsti flokkur Noregs. Slíkt flokkast undir öflugan pólitískan jarðskjálfta þar í landi.
Formaður Framfaraflokksins er Siv Jensen. Hún tók við embættinu af Carl I. Hagen árið 2006, en Hagen hafði verið formaður flokksins í tæpa þrjá áratugi. Siv Jensen og samstarfsfólki hennar í Framfaraflokknum hefur tekist að halda flokknum á góðri siglingu.
Nú er svo komið að norska þjóðin er jafnvel farin að búa sig undir að næsti forsætisráðherra verði Siv Jensen. Gengið verður til kosninga á næsta ári. Það yrði mjög áhugavert að fylgjast með ríkisstjórn undir hennar forystu. Sú ríkisstjórn yrði þá samsteypustjórn Framfaraflokksins og gamla Hægri flokksins, sem er íhaldsflokkur ekki ósvipaður Sjálfstæðisflokknum hér á landi.
Ég gæti skrifað langar ritgerðir um norska Framfaraflokkinn en læt staðar numið í bili.
------------------------
Ljósmyndin hér fyrir ofan er af Siv Jensen á góðri stundu, ásamt varaformönnum Framfaraflokksins en þeir eru tveir þar á bæ.
3 ummæli:
Gott að heyra. Hægri bylgjan sem byrjaði Danmörku er komin til Noregs.
Ísland er reyndar að sveiflast til vinstri, þ.e. Samfó er að verða stærsti flokkur landsins.
Þetta er tímabundið ástand en mun breytast þegar Samfó hefur fokkað öllu upp hér á landi og þá fáum við svipaða hægribylgju og er í Danmörku og Noregi núna.
Þetta hefur ekki nokkra merkingu, Frp er í raun vinstri grænir þeirra norðmanna þrátt fyrir að vera hægri flokkur. Stjórnmálaumhverfið í Noregi er mjög vinnstrimiðað og því er Frp mótvægi við hina almenni rödd, það er því nokkuð eðlilegt ef stjórnin er óvinsæl að fólk segist ætla að kjósa þann flokk. Aftur og aftur er Frp stærsti flokkur landsins í skoðunarkönnunum og er nú annar stærsti flokkurinn og stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn. Hann mun hinsvegar ekki hljóta kosningu þessa kosningu þegar kemur að því að norðmenn kjósi enda vel þekktur þarna úti fyrir málefnaleysi, popúlisma og hreint og klárt homma og útlendingahatur.
Allt eitthvað sem Norðmenn hafa ekki mikla þolinmæði fyrir ef tekið er frá More og Romsdal þar sem Frp er ávalt stærsti flokkurinn.
Þess má einnig get að ég hef búið í bæ í Noregi sem var undir meirihlutastjórn Frp og þvílíkt og annað eins rugl hef ég sjaldan upplifað. Ég er því auðvitað ekki algjörlega hlutlaus.
Var það ekki þessi Siv sem hótaði að gríta þingkonunni út af þingi ef hún kæmi inn á það með slæðu.
He he..
Skrifa ummæli