Ritgerðin sem Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa nú sent til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna er sennilegast versta bögubósasmíð sem nokkru sinni hefur verið undirrituð af íslenskum ráðherra.
Samfylkingin er gersamlega að bregðast þeim væntingum sem fólk í sjávarbyggðum þessa lands batt við flokkinn.
Hún er orðin hækja hins halta Íhalds.
En það var svo sem beitt blekkingum til að fá fólk til að kjósa "jafnaðarmannaflokkinn" með músarhjartað og rauða punktinn.
Tökum sem dæmi þennan vaðal hér fyrir neðan, sem skrifaður var af Björgvini G. Sigurðssyni núverandi viðskiptaráðherra rétt fyrir síðustu kosningar. Þetta er bara niðurlagið í makalausri ritgerð sem lesa má í heild sinni með því að smella hér, og fara inn á heimasíðu ráðherrans:
Ógnin sem Sjálfstæðisflokknum stendur af Samfylkingu jafnaðarmanna er mikil.
Bandalag jafnaðarmanna sem á möguleika á því að ná 30-40% fylgi er martröð íhaldsins og markar endi á valdaskeiði þeirra.Með áralangri póltískri vinnu fjölda fólks tóks að sameina Alþýðuflokkinn, Alþýðubandalagið, Þjóðvaka og Samtök um Kvennalista í einum breiðum flokki. Stórum sósíaldemókratískum flokki að norrænni fyrirmynd í þeim tilgangi að breyta íslenska samfélaginu.
Það er þess vegna fráleit hugmynd sem nýverið kom fram í grein eftir Margréti Björnsdóttur á síðum Morgunblaðsins að það væri fýsileg hugmynd að stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar komi til greina nú.
Til hvers var þá sameinað? Var þá ekki alveg eins gott að starfa áfram í flokkunum fjórum og keppast um að komast í hlutverk hækju Sjálfstæðisflokksins eftir hverjar kosningar eins og var dapurlegt hlutskipti vinsriflokkanna á árum áður?
Sögulegt hlutverk Samfylkingarinnar
Í ljósi sögulegs hlutverks Samfylkingarinnar er samstarf við Sjálfstæðisflokk síðasti kostur flokksins. Neyðarkostur sem sérstakar aðstæður yrðu að kalla fram. Ekkert annað réttlætir slíkt samstarf þó að það sé auðvitað ekki útilokað komi slíkar aðstæður upp. Enginn sér hamfarir eða þjóðarvá fyrir.
Samstarf við Sjálfstæðisflokk myndi marka endi á drauminum um nýja breiðfylkingu sem leysti Sjálfstæðisflokkinn af hólmi. Samfylkingin væri þá ekki að uppfylla sitt sögulega hlutverk. Umræðan er vissulega ágæt og það er skylda flokkanna við kjósendur að tala skýrt um samstarfskostina að loknum kosningum. Ekki síst næstu kosningum sem vonandi marka endi á samfelldri sextán ára valdatíð hægrimanna á Íslandi. Um leið nýtt upphaf að stjórn undir forystu jafnaðarmanna.
--------------
Nokkrum dögum eftir að þessi grein birtist í fjölmiðlum var Björgvin G. Sigurðsson orðinn ráðherra.
Ráðherra í ríkisstjórninni sem svo notuð séu hans eigin orð; - markar nú endalok draumsins um að Samfylkingin eignist sögulegt hlutverk.
Nema náttúrulega hlutverkið sem Júdasarflokkurinn sem með einum kossi sveik fólkið í sjávarbyggðum Íslands.
4 ummæli:
Þessar 16 blaðsíður af ekkisvarinu hans Einars K til mannréttindanefndar er gott dæmi um vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í heild sinni. Þarna "múnar" Einar K framan í mannréttindanefndina og gefur þeim svo vinstri krók að auki með því að segja að ekki sé ætlunin að bæta þolendum mannréttindabrotanna upp skaðann með skaðabótum.
Skoðum það aðeins nánar,, hvers vegna vill Einar ekki að greiddar verði út skaðabætur? Jú það er vegna þess að hann segir að það myndi valda því að röð sjómanna myndi fara í mál við stjórnvöld og sjómennirinir þar af leiðandi myndu fara fram á skaðabætur.
Segir þetta okkur ekki það að ríkisstjórnin viti upp á sig skömmina en afneitar henni hinsvegar með öllu?
Höfum það hugfast í næst kosningum að ríkisstjórn Íslands er ekki einungis hið halta íhald,, heldur er hún líka kolryðgað flak með sprungið á öllum fjórum og með loftlaust varadekk.
Kveðja Jóhann Kristjánsson
Formaður frjálslyndra í Eyjafirði
Ég myndi líka múna framan í mannréttindanefndina þar sem að úrskurður hennar er ein mesta steypa sem ég hef lesið. Það að þessa menn þolendur mannréttindabrota er þvílík fyrring.
Ef það á að fara að borga þessu liði skaðabætur þá hætti ég að borga skattana mína!
IG
Ef Samfylkingin er hækja hins halta íhalds - hvað er þá F-listinn í borginni?
DH
Úff - ekki nefna F-listann í Borginni í mín eyru. Það batterí er óviðkomandi Frjálslynda flokknum.
Skrifa ummæli