þriðjudagur, 3. júní 2008

Fórnarlamb "Fagra Íslands"

Óskaplega er það ógæfulegt drápið á hvítabirninum sem var felldur var nú í morgun.

Drepinn að tilskipan umhverfisráðherra Samfylkingarinnar.

Vert er að skoða gagnrýni Egils Steingrímssonar héraðsdýralæknis á mbl.is. Ótal spurningar vakna við lestur hennar.

Hvers vegna var veginum ekki bara lokað og síðan fylgst með dýrinu úr hljóðlátri fjarlægð á meðan næstu skref voru ákveðin, sem miðuðu að því að fjarlægja dýrið lifandi og koma því aftur til síns heima?

Og er ráðherrann að segja ósatt um deyfilyfin?

Þessi björn var sennilegast í ætisleit, kominn úr hafísnum norður af landinu. Það var hans dauðasynd. Hefði ekki átt að vera hægt að finna æti og leggja fyrir ísbjörninn, í staðinn fyrir að skjóta fyrst og spyrja svo? Benda má á að á Sauðárkróki er fóðurstöð sem framleiðir æti fyrir loðdýr og þar hefði vísast mátt finna eitthvað bitastætt í sláturúrgangnum sem þar er notaður. Ef æti hefði verið kastað fyrir dýrið má telja sennilegt að það hefði unað sér við það næstu klukkutímana á meðan næstu skref hefðu verið undirbúin.

Til að mynda það að útvega efni og búnað til að svæfa björninn. Finna kassa eða búr til að setja hann í. Gera ráðstafanir til að flytja dýrið aftur norður í höf að ísröndinni. Ísinn er ekkert mjög langt undan. Hér er nýjasta hafískortið á vef Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.

Hvers vegna var ekki hægt að leysa málið með þessum hætti? Gefa vininum að éta, svæfa hann, halda honum deyfðum í kassa eða búri og senda hann norður með skipi?

Er þetta svona flókið á Íslandi árið 2008?

Eða ræður fólk ekki við það að skipuleggja svona við skrifborðin í umhverfisráðuneytinu?

Nær skilningurinn og umburðarlyndið gagnvart náttúrunni ekki lengra en svo þar á bæ, að í hvert sinn sem villt fjórfætt spendýr stærri en refir birtast á Íslandi, þá er eina ráðið hjá ráðherra Samfylkingar að grípa til öflugra skotvopna?

Fagra Ísland hvað?

Þetta dráp á birninum pirrar mig alveg óskaplega. Ég hef lengi verið mjög hrifinn af þessum stórkostlegu dýrum sem ísbirnir eru. Þetta eru heilagir konungar norðursins.

Það á aldrei að fella þá nema í algerri nauðvörn.

Ég minnist þess þegar ég var á norskum rækjutogurum í hafísnum við Svalbarða að þá komu þeir stundum til okkar gangandi yfir ísinn. Þetta eru forvitin dýr, alltaf að leita að einhverju æti. Á myndbandinu sem sjá má á vef RUV er vart hægt að sjá þá stórkostlegu hættu sem stafaði af birninum.

Myndskeiðið hér fyrir neðan sýnir einmitt ísbirni eins og ég minnist þeirra af eigin reynslu. Það er tekið úr rússnesku rannsóknaskipi við Svalbarða. Þarna eru þeir í sínu rétta umhverfi - og það er í hafinu bara nokkur hundruð kílómetrum norður af Íslandi.

Og Ísland er hluti af þessari náttúru - þó málefnahandbækur Samfylkingarinnar segi annað.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er þetta ekki rasismi að drepa hann Bjössa litla.

Nafnlaus sagði...

Það var mjög sárt að horfa á þetta.

Nafnlaus sagði...

Á síðari árum hefur ofstæki múslima drepið fleira fólk en grimmd hvítabjarna.
Þar sem hvorki múslimar né hvítabirnir eru í sínu kjörumhverfi hér á landi er rétt að báðir fái sömu meðferð frá hendi stjórnvalda