Þegar skoðuð eru orð og gjörðir Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra vegna drápsins á ísbjarnarhúninum í dag, þá blasir við svo mikið dugleysi og ráðleysi á alla vegu að ég fæ ekki séð hvernig þessi ráðherra ætlar að sitja áfram og njóta tiltrúar og trausts í embætti.
Þetta er dæmi um þann einstaka bullukollugang sem einkennt hefur ráðslag Samfylkingarráðherra ríkisstjórnarinnar það sem af er þessu kjörtímabili. Reyndar er þetta toppurinn á vitleysunni og er þá mikið sagt.
Það stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi Þórunnar. Hún ruglar og bullar um að koma bjarnarins tengist óeðlilegu ástandi í loftlagsmálum og náttúrufari! Ef svo er og hafísinn horfinn - hvernig stendur þá á því að hafísinn er rétt norður af landinu og svo nálægt að ísbjörn gengur hér á land í sumarbyrjun?
Í fréttum lýsti umhverfisráðherra þessu dýri eins og hér væri á ferð ein mesta ófreskja sem menn hefðu augum litið hér á landi. Síðan hefur hún miklað það á alla kanta og vegu hve ómögulegt það hefði verið að fanga dýrið lifandi og koma því aftur til sinna heimkynna á hafísnum sem er rétt norður af landinu. Fjörutíu sjómílur hefur frúin sagt með andköfum í hverju viðtalinu á fætur öðru - eins og hér sé um að ræða óyfirstíganlega fjarlægð.
Þórunn Sveinbjarnardóttir - Fjörutíu sjómílur eru skitnir 75 kílómetrar eða nokkurn veginn vegalengdin milli Reykjavíkur og Borgarness...
Ég gat ekki séð á neinum fréttamyndum dagsins að þessi björn hefði verið ógn við eitt né neitt. Hann var langt uppi í fjalli, langt frá þjóðveginum, óravegu frá byggð. Þegar hann var drepinn sýndist mér á fréttamyndum hann vera að fjarlægjast mannsöfnuðinn og bílaflotann á þjóðveginum.
Það var ekkert óframkvæmanlegt að bjarga bangsa eins og handhafi framkvæmdavaldisns á Íslandi í umhverfismálum heldur fram í von um að blekkja alþjóð. Hvað með það þó bíða þyrfti nokkra klukkutíma eftir svæfingarlyfjum og byssu ef það var slíkt sem skorti? Og þó lyf hefðu ekki verið til í landinu, þá er það nú svo að flugvélar fara á milli tugum saman hvern einasta dag og það hefði nú mátt koma lyfjapakka í hraðsendingu á eina þeirra. Eða hvað?
-----------------------
Svona hefði mátt gera þetta:
1. Það átti að loka fyrir alla umferð almennings og gæta þess að ekki kæmist styggð eða hræðsla að dýrinu sem var alveg rólegt í upphafi.
2. Það átti að vera hægt að leggja út æti og þannig gefa birninum að éta, dópa hann niður og flytja á brott.
3. Ein af þyrlum Gæslunnar hefði getað tekið hann í neti niður á þjóðveginn.
4. Þar hefði mátt bíða með kassa, gám eða öflugt trébúr sem röskir smiðir hefðu sett saman í dag niður á Sauðárkróki.
5. Dýrið flutt á bíl til hafnar á Skagaströnd eða Sauðárkróki.
6. Þar um borð í fiskibát og sigla svo með bjössa norður að hafísröndinni og sleppa honum lausum þar.
-------------------
Var þetta virkilega svona erfitt?
Ef það er rétt sem Þórunn segir að einungis 75 kílómetrar séu í hafísinn þá hefði bangsi getað verið kominn heim aftur á morgun!
Þessi viðburður hefði fengið mikla og jákvæða athygli í fjölmiðlum og orðið frábær auglýsing fyrir land og þjóð á alþjóða vettvangi.
En í staðinn situm við uppi með það að umhverfisráðherrann hefur með dugleysi sínu sett skammarblett á þjóðina. Hvítabjörninn hræðilegi sem reyndist bara vera rúmlega 200 kílóa húnn, var skotinn þvert á reglur, lög og alþjóðasáttmála þar sem hann var að reyna að fjarlægjast mennina sem vildu hann feigan.
Á þessu ber umhverfisráðherra Samfylkingarinnar alla ábyrgð. Málið verður enn ljótara í ljósi þess að hér fer stjórnmálamaður sem gert hefur sérstaklega í því að útmála sig sem boðbera pólitískrar stefnu í umhverfisvernd á vegum stjórnmálaflokks sem situr í ríkisstjórn. Hérna sáum við í verki hið sanna umburðarlyndi og umhyggju ríkisstjórnarinnar fyrir náttúru heimskautasvæðanna sem Ísland er hluti af.
Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur opinberað vanhæfni sína og á að mínu mati að segja af sér.
Og hana nú!
------------------
Viðbót klukkan 22:06:
Þetta er komið á youtube.com http://www.youtube.com/watch?v=l_jFgIwbAmk
þriðjudagur, 3. júní 2008
Burt með þennan umhverfisráðherra!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
18 ummæli:
Ég er sammála þér Magnús í þessu máli. Sjálfur hef á ávallt kosið Samfylkinguna en er orðinn hrikalega leiður á dug- og getuleysi ráðherra Samfylkingarinnar.
Þórunn má skammast sín fyrir hvernig hún hélt á þessu máli. Skagfirðingar vildu auðvitað bara fá að skjóta ísbjörn, hún átti að halda aftur af þeim og sýna vilja til að bjarga honum, sem hefði ekki verið neitt mál eins og þú bendir á.
Sæll, Magnús. Þetta er nú ekki meira í óbyggðum en það að örfáir kílómetrar eru í næsta bæ, Heiði í Gönguskörðum og þaðan eru fáir kílómetrar í Sauðárkrók. Miðað við hvar hann var staddur má leiða líkur að því að hann hafi verið búinn að rölta rúmlega það. Í nokkra tuga kílómetra radíus frá þessum stað búa rúmlega 4.000 manns. Verð að segja að ég hef lítinn áhuga á að hafa tveggja metra og 200 kílóa rándýr í bakgarðinum hjá mér.
Ég kalla það dágóðan spöl fyrir dýr sem gengur í hægðum sínum þegar nokkrir kílómetrar eru í næsta bæ. Tala nú ekki um þegar dýrinu er fylgt eftir af þungvopnuðum mönnum.
Ísbirnir eru mjög lélegir hlauparar. Geta tekið stutta spretti en eiga það á hættu að fá hitasjokk ef þeir hreyfa sig of hratt í of langan tíma.
Er þá loksins fundinn innflytjandi sem þér þykir vænt um?
Kv. Dofri.
Fyndinn Dofi. Samfylkingarinnar vegna vona ég að þetta sé ekki sá Dofri sem mér dettur í hug...
Sæll Magnús, þess má geta að ísbjörninn var á leiðinni í svartaþoku þegar ákveðið var að skjóta hann. Þú hefur væntanlega verið fús í að taka það að þér að ganga í meter skyggni til að reyna gefa 200 kg svöngum ísbirni deyfilyf..og einnig taka ábyrgðina á því að finna hann áður en hann mundi birtast á 9 holunni á Sauðárkróksgolfvelli..yfir öllu er hægt að rífast en stundum er einn plús einn bara tveir, kv. Björn Ingi
Þvaðrið í henni í kvöld minnti á óráðsbullið í borgarstjóranum okkar í fyrstu viðtölum hans. féll tvímælalaust á þessari prófraun.
Ísbjörninn lá eins og kötturinn hérna í húsinu á meltunni áður en stórskotaliði mætti og setti styggð að honum. Hvað var allt þetta fólk að gera þarna? Þetta er stjórnlaust ráðleysi frá A-Ö
Sæll Magnús.
Ég er þér sammála og einnig um dug-og ráðleysi ráðherra Samfylkingarinnar. Þann flokk kýs ég ekki aftur.
Hins vegar finnst mér þetta ekki tilefni til að krefjast afsagnar ráðherrans. Málið er einfaldlega ekki svo stórt. Hins vegar eru önnur mál þess eðlis að hún og fleiri hefðu þegar átt að vera búin að segja af sér.
Þetta lið er búið að gleyma öllum kosningaloforðunum - sjáið þið álversmálin og nato-væðingu utanríkisráðherrans.
Það verður fróðlegt að fylgjast með Þórunni koma sér hjá því að stoppa rússneska OLÍUHREINSUNARSTÖÐ á Vestfjörðum.
Ég skora á fólk að fylgjast vel með því máli.
Kveðja,
Karl
Eru ísbirnir gjarnir á ad fela sig í thoku?
Geta kannski ordid ósýnilegir?
Málid er ordid ad algeru klúdri. Eins og einhver bloggarinn skrifadi; hér skitu menn uppá bak - án atrennu.
Á fréttamyndum gat ég ekki séð þessa ógurlegu þoku sem talað var um. Og hvað með það þó hann hefði horfið í smá stund. Menn hefðu fundið dýrið aftur. Hvítur ísbjörn er nú ekki beinlínis lítið áberandi á þessum slóðum. Og hann hefur ekki mikla yfirferð. Ísbirnir eru engin hlaupadýr.
Og þeir ráðast ekki á menn sé rétt að þeim farið, nema þeir séu ærðir af sulti eða í vörn gegn árásum manna til að mynda þegar birnur verja húna sína. Á Svalbarða hafa ísbirnir aðeins drepið 3 manneskjur og slasað sex á þeim 35 árum sem liðin eru síðan þeir voru alfriðaðir. Og það eru mjög margir ísbirnir á Svalbarða (um 4.000) og algengt að þeir hitti fólk.
Og ráðherrann á að fara frá. Málið er alveg nógu stórt til þess. Þó þetta hafi "bara" verið einn björn þá er þetta algert grundvallarmál sem klúðraðist heiftarlega í höndum þess ráðherra sem á að fara með umhverfismál hér á landi.
Ófyrirgefanlegt, ófyrirgefanlegt.
Hér er ágætur bæklingur um ísbirni frá Sýslumanninum á Svalbarða:
http://npweb.npolar.no/filearchive/isbjornbrosjyre.pdf
Á ensku:
http://kho.unis.no/doc/Polar_bears_Svalbard.pdf
Vá hvað þetta er barnalegt, trúi ekki að fullorðið fólk sé hér að mæla.
Er svo eina lausnin að láta umhverfisráðherra segja af sér?!
Halló þetta er fáranlegt!!!!
Ráðherra sem verður uppvís að alvarlegum afglöpum í tengslum við málaflokk sinn, og í ofanálag að hreinum rangfærslum í málflutningi á að fara frá. Svo einfalt er það.
Er þér sammála Magnús.
Ég varð mjög reiður þegar ég heyrði að dýrið hafi verið drepið í stað þess að reyna að koma því til síns heima.
Það hefði ekki verið svo mikið mál. Var ekki viðtal við dýralækni sem kom á vettvang sem var með deyfilyfið í BÍLNUM SÍNUM. Og þá hefði verið hægt að senda eftir byssunni sem hefði tekið 1-2 klukkutíma eða setja lyfið í mat.
Burt með þennan ráðherra. Samfylkingin er ekkert annað en ljót vonbrigði, sem kjósendur losa sig án efa við, í næstu kosningum.
Kveðja
Einar Einarsson
Þú leggur þig þvílíkt fram við að rökstyðja með hvaða hætti hefði verið hægt að bjarga þessum ísbirni en getur ekki með nokkru móti fundið það hjá þér að leita leiða til að koma palestínskum flóttamönnum fyrir á Akranesi. Báðar aðgerðir eflaust "ópraktískar" á sinn hátt en af mannúðarástæðum (eða dýraverndunarástæðum) er þetta eitthvað sem fólk reynir nú samt að framkvæma. Skil ekki alveg hugsunarháttinn hjá þér...frekar en fyrri daginn.
Það er glórulaust rugl að tengja þetta ísbjarnarmál við málefni flóttafólks frá ÍRAK - ekki Palestínu. Hvað þá að bera þessi mál saman. En niðurstaða mín í því máli var vel rökstudd og málefnaleg og afstaða mín í því máli hefur hvergi breyst.
Ráðherra segir við lögregluyfirvöld: Þið gerið það sem þarf að gera. Hún lætur yfirvöld á staðnum meta stöðuna, enda var hún þar ekki sjálf. Gerði hún eitthvað ólöglegt? Nei. Fór hún út fyrir valdsvið sitt? Nei. Vel má vera að einhverjir séu ósammála því sem hún gerði en þetta eru engin afglöp. Þarna þurfti að taka skjóta ákvörðun og hún leyfir yfirvöldum á staðnum að gera það.
Hvað haldið þið að Þórunn hafi viljað gera? Haldið þið virkilega að hún hafi viljað drepa dýrið? Hvaða hagsmunum hennar þjónaði það að drepa það?
Hún lét þá sem voru á staðnum meta stöðuna og bregðast við í samræmi við það. Hún fyrirskipaði aldrei drápið á dýrinu.
Að krefjast afsagnar útaf svona smámáli þar sem ráðherra brýtur ekki einu sinni af sér er út í hött. Þið hljótið að sjá það.
Skrifa ummæli