
Það kemur svo sem ekki á óvart að nú skuli annar ísbjörn hafa fundist á Skaga. Þeir fara oft um fleiri en einn á svipuðum slóðum.
Þetta gæti verið bróðir, systir eða móðir hins sem felldur var á dögunum á ábyrgð umhverfisráðherra Samfylkingarinnar - eflaust til dýrðar umhverfisstefnunni Fagra Ísland.
Reyndar var leitað að öðrum hvítabirni eftir það víg, en ekkert sást.
En nú er hann fundinn við þá saklausu iðju að stela eggjum og leggjast síðan til svefns.
Í náttúru Íslands, sem er líka náttúra ísbjarna - hvort sem Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokk líkar betur eða verr.
Vonandi lendum við ekki í að gera sömu mistökin og síðast. Þau voru hrikaleg PR katastrófa fyrir Ísland og ófyrirgefanlegur smánarblettur í umhverfismálum, enda hefur umhverfisráðherra Samfylkingarinnar ekki borið sitt barr síðan. Reyndar sýndist mér í einhverri frétt áðan að settur umhverfisráðherra í afleysingum nú sé Björgvin G. Sigurðsson.
Það er sami Björgvin og aldrei ætlaði að sjá Samfylkinguna verða hækju Íhaldsins, samanber þetta hér. En það var fyrir síðustu kosningar, þegar núverandi umhverfisráðherra í afleysingum skrifaði lærðar greinar um "flokk skræpótta fuglsins" og hampaði sér og sínum fyrir geysilega vistvæna umhverfisstefnu.
Er ég sá eini sem sér kaldhæðnina í því að þessi allt-í-plati ráðherra ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sem um daginn tók svo fyrstu skóflustungu að nýju álveri í Helguvík, - skuli nú vera á vakt þegar nýr ísbjörn finnst norður í landi?
En nú er ekki um annað að ræða en að flytja dýrið lifandi aftur til síns heima. Embættisfólk umhverfisráðherra og ráðherrann sjálfur sem sóru svo sárt við og lögðu um daginn að engin ráð hefðu verið önnur en að drepa björninn, hljóta að hafa nýtt tímann síðan þá og hugsað út áætlun og unnið undirbúningsvinnu ef ske kynni að fleiri birnir fyndust.
Hér eru tillögur sem ég setti fram 3. júní síðastliðinn:
Svona hefði mátt gera þetta:
1. Það átti að loka fyrir alla umferð almennings og gæta þess að ekki kæmist styggð eða hræðsla að dýrinu sem var alveg rólegt í upphafi.
2. Það átti að vera hægt að leggja út æti og þannig gefa birninum að éta, dópa hann niður og flytja á brott.
3. Ein af þyrlum Gæslunnar hefði getað tekið hann í neti niður á þjóðveginn.
4. Þar hefði mátt bíða með kassa, gám eða öflugt trébúr sem röskir smiðir hefðu sett saman í dag niður á Sauðárkróki.
5. Dýrið flutt á bíl til hafnar á Skagaströnd eða Sauðárkróki.
6. Þar um borð í fiskibát og sigla svo með bjössa norður að hafísröndinni og sleppa honum lausum þar.
------------
Hér fyrir ofan er nýjasta ískortið sem finna má á vef Veðurstofunnar (smellið á til að sjá stærra). Það er þriggja daga gamalt. Eins og sjá má er ísröndin nokkuð skammt undan Vestfjörðum og að hluta innan miðlínu Íslands og Grænlands.
mánudagur, 16. júní 2008
Allt-í-plati Björgvin mætir Birni
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
11 ummæli:
þetta er svolítið dæmigerður gagnrýnipistill frá þér, með fyrri björninn þá var lögreglan í slæmri stöðu vegna mannfjölda sem var mættur í forvitni og í augljósri hættu og lítið annað hægt að gera(en nú er staðan önnur og betri) það t.d. er ekki hægt að leggja fyrir hann hræ til að dópa hann upp því þá er alls enginn séns að við honum verði tekið aftur, sem mér finnst enn reyndar harla ólíklegt ætli hann endi ekki ævina í dýragarði í köben en þá veit ég hreinlega ekki hvort ekki sé betra að klára þetta hér heima....spurning..
Hah! Trébúr!
Flestir ættu nú að vita það að trébúr myndi ekki duga í 2 sekúndur gegn þessari skepnu.
Ótrúlegt hvað margir Íslendingar eru haldnir mikilli hræðslu við ísbirni, og halda að þetta séu ofurskepnur gæddar yfirnáttúrlegum kröftum.
Sennilega er fólk búið að horfa of oft á Jurassic Park.
Saklaus iðja að stela eggjum. Magnús, þetta er lífsviðurværi fólksins!! Ekki gera lítið úr því og hvað ætlar þú að segja ef að dýrið fer að leggja sér kindur bændanna til munns?
Ég hefði nú ætlað að bændum yrði bættur skaðinn í æðarvarpinu, en við nánari umhugsun er ég ekki svo viss.
Að minnsta kosti liggur fyrir að þessa vesalings ríkisstjórn ætlar ekki að bæta sjómönnum tjón þó brotin hafi verið á þeim mannréttindi árum saman.
Magnús. Þessar tillögur þínar ganga ekki upp. Ef við ætlum að leggja fyrir hann æti, þá taka Danir ekki við honum útaf sýkingarhættu.
Og trébúr ??? Þetta búr sem nú er komið til landsins er svo rammgert að það hálfa væri nóg. Það mátti ekki einu sinni taka það í sundur fyrir flutningana frá Danmörku, slíkar eru öryggisreglurnar. Og þú vildir láta smíða trébúr ???
Nei, Magnús minn. Þetta gengur ekki upp hjá þér.
Kveðja,
KK
Hver segir að Danir ættu að taka við dýrinu? Hafísinn er innan íslenskrar lögsögu.
Og þetta með úr hvaða efni búr ætti að vera er bara útúrsnúningur sem ég nenni ekki að elta.
En hvernig ætlaðir þú þá að framkvæma það að sleppa dýrinu?? Bara skutla því í sjóinn við ísröndina? Eða kannski leggja búrið á ísinn, opna það og hlaupa svo í burtu ??
Svo ég noti nú þína eigin aðferðarfræði, þá verður að vera einhver vitglóra í svona aðgerðum.
Kveðja,
KK
KK nú veit ég ekki hvort þú hefur siglt í hafís, en ég hef gert það.
Það er hægt að sigla inn í ísinn, leggjast upp að góðum ísfleka, setja búrið þar á og opna það.
Ísbjörn gengur út. Skip siglir í rólegheitum á brott.
End of story.
Nú, þú ert þá væntanlega með skip í huga sem er með búnaði til að hífa búrið frá skipi og útá ísinn, opna það og hífa aftur um borð þegar björninn er komin út?
KK
Að sjálfsögðu. Öll fiskiskip eru með góða krana um borð. Varðskipin líka. Þetta á ekki að vera neitt mál.
Pís of keik, eins og sumir myndu segja.
Skrifa ummæli