Eftir allt írafár undangenginna daga er gott að kíkja á smá spaug. Oft hefur það glettilega skírskotun til atburða líðandi stundar.
Æðstipresturinn í þessu myndskeiði úr bíómyndinni "Life of Brian" minnir óneitanlega á alla pólitísku rétttrúnaðarsinnana og hræsnisprédikarana í Samfylkingunni og öðrum flokkum.
Það á að taka mann af lífi fyrir að segja það sem ekki má tala um.
En að lokum hittir rétttrúnaðurinn þá fyrir sem prédika hann hæst. Áhrínisorðin og svívirðingarnar sem notuð eru gegn þeim sem hafa kjark til að tala út um málin og standa við skoðanir sínar, hætta einfaldlega að virka. Vopnin snúast í höndum Samfylkingarinnar.
Og þyngsti steinninn lendir á æðsta prestinum.
miðvikudagur, 21. maí 2008
Þyngsti steinninn fellur
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
12 ummæli:
Já þetta myndskeið lýsir ástandinu svo sannarlega vel Magnús. Þú ert sönn íslensk hetja og átt skilið að hljóta Fálkaorðuna
Bý í Danaveldi, en hef verið að fylgjast með þessu máli úr fjarska. Er ekki stuðningsmaður þinn eða þíns flokks og hef ekki haft neitt sérstakt álit á þér. En mér ofbíður þetta rugl, ég hef lesið það sem þú hefur sagt, átt að hafa sagt, hlustaði á þig í silfrinu og lesið blogg annara sem afa verið að vitna í þig og ekki í eitt skipti hef ég orðið var við annað en að þú sért málefnalegur. Ég get ekki séð þenna rasista sem allir eru að tala um. Það getur vel verið að þú sért það og það er þá bara þitt. En afþví ég horfi á þetta úr fjarska þá get ég ekki orða bundist. Það er greinilega mjög mikið tabú að ræða þessi mál á Íslandi og mjög mikið inn að slá sig til riddara með því að berja á þeim sem impra á þessu. Ég hefði örugglega verið einn af þeim fyrir nokkrum árum, en eftir að hafa búið í Danaveldi í 2 ár og séð öll vandamálin hér þá verð ég að styðja þig í þvi að það þarf að vera hægt að ræða þessi mál án þess að eiga á hættu að vera ofsóttur. Fyrir það áttu í raun heiður skilið þó kannski sé það í pólitískum tilgangi meira heldur en af umhyggju fyrir landi og þjóð. En allavegana þá styð ég þig heilshugar í þessu, Íslendingar þurfa að fara að ræða þessi mál opinskátt, fyrir dani er það orðið of seint, en þó hafa menn sem hugsa eins og þú stjórna hér í 3 kjörtímabil. Þeir bara ráða ekki við vandann.
Þessi umræða um innflytjendur og útlendinga hér á Íslandi er orðin mjög skrítin.
Það liggur við að ef einhver segir orðið "útlendingur" eða innflytjandi" að þá er sá sami orðinn rasisti og illmenni.
Ef spurðar eru spurningar um þessa 60 flóttamenn sem á að henda upp á Skaga og talað er um kosti og galla, að þá er viðkomandi bölvað illmenni og kynþáttahatari.
Hvað er að gerast með landann. Eru allir orðnir ruglaðir?! Hver fjárinn gengur á?
Sigurður S.
Ég var að lesa DV rétt áðan og þar stóð:
Undirskriftalistar voru teknir niður en Gísli Einarsson bæjarstjóri segir að bæjarstjórnin hafi ekki átt þátt í að taka þá niður, þeir hafi ekki heimild til þess. (hans orð).
annarstaðar stendur að Gunnar, úr bæjarstjórn hafi séð til þess að allavegana 2 listar hafi verið teknir niður, hjá Skeljungi en hann starfar einnig þar.
Þarna urðu þeir tvísaga. Mér finnst dapurlegt að svona er brotið á fjölda fólks hér á Akranesi sem eiga að hafa þann rétt að geta mótmælt komu 60 manns sem fara á félagslega kerfið, hvort sem það er strax eða eftir 1 ár, þegar ríkið firrar sig allri ábyrgð og skellir þessu vandamáli á Skagann.
Þetta eru lélegir fulltrúar Akranesbæjar og ætti að setja þá af og kjósa aftur!
Það er mín skoðun. Bjarni, frá Akranesi.
Mér finnst mjög einkennilegt þegar fólk talar um að þetta sé eins og að bjarga sjómönnum frá drukknun. Mér dettur í hug þeir sem eftir eru í búðunum, mega þeir bara drukkna? Af hverju ekki að bjóða öllum í Al-waleed hingað og deila þeim niður á sveitarfélögin? Okkur ætti nú ekki að muna um það,svona ríkri þjóð, þetta er ekki nema tæp 2 þús. manns.
kv.
Ekki til birtingar neitt frekar, bara skilaboð til þín.
http://www.petitiononline.com/magthor/petition.html
Þetta er frá Sveini helgasyni og Félagi anti-rasista
E
Það sem hefur komið mér á óvart síðustu daga er það eru mjög margir sem eru á þeirri skoðun að fólk eigi að fá að segja sína skoðun á þessum málum. Fólki finnst þessar nornaveiðar hjá ýmsum algjört rugl.Þó mörgum finnist í lagi að taka á móti fólkinu finnst þeim einnig eðlilegt að ræða málin og undirbúa komu þeirra.
Gunnar Skúli.
Sé það rétt, að umræddir undirskriftalistar hangi ekki lengur uppi, þá eru það ánægjulegar fregnir. Þeir eru settir fram í pólitískum tilgangi og er ætlað að kynda enn frekar undir móðursýkislegri umfjöllun um landflótta konur og börn. Almenningur sér í gegnum slíkan hræðsluáróður og hefur engan áhuga á að láta bendla sig við hann. Þeir sem standa fyrir svona undiskriftasöfnun verða bara að láta sér það lynda, þegar samborgarar þeirra reynast vera á annarri skoðun.
Bjarni, frá Akranesi.
Sæll Magnús
Ég var búin að lofa sjálfri mér að taka ekki þátt í þessari umræðu en neyðist nú til að brjóta það loforð. Það stafar sjálfsagt af því að ég er ein af þessum pólitísku rétttrúnaðarmanneskjum, eins og þú kallar okkur. Það er nú alltaf hægt að treysta á að þú standir þig þegar kemur að gífuryrðum.
Ísland er eitt ríkasta land, ef ekki það ríkasta í heimi. Hvað segir það um smásálarhátt íbúa landsins ef ekki er hægt að taka við 60 manneskjum á tveimur árum? Ef við getum þetta ekki, hver getur það þá? Það má ekki gleyma því að hörmungar þessa fólks eru búnar til af mannavöldum, og sem ein af hinum "viljugu" þjóðum, berum við stóra ábyrgð, hvort sem við vorum sammála ríkisstjórninni eða ekki.
Ég hef búið í Danmörku í 14 ár, og tel mig vera vel dómbæra á mál þar. Því undrar mig athugasemd hér að neðan, frá íslendingi búsettum hér, að afstaða hans gagnvart útlendingum hafi breyst, hann (hún) gleymir því reyndar að hann er sjálfur útlendingur. Í hverfinu sem ég bý í, býr fólk af mismunandi uppruna, og það veldur akkúrat engum vandræðum í daglegu lífi.Þegar við fjarlægjum alla "merkimiða" af fólki, þá erum við öll eins, og höfum sömu grunnþarfir.
Eins og málið snýr við mér, þá er hér um neyðaraðstoð að ræða. Öll umræða um hjálp á nærsvæði er marklaus, þar sem nærsvæðið er ekki til staðar.Þetta fólk er landleysingjar og sem slíkt býr það við verstu hugsanleg kjör og er réttindalaust. Það er alveg hárrétt að við getum ekki bjargað öllum, en á að nota það sem afsökun fyrir því að neita að axla ábyrgð? Eða snýst þetta í raun um "óhreinu börnin hennar Evu" sem enginn vill vita af? Einhverjar "slæðukellingar" og upprennandi terrorista?
Hvað varðar bæjarstjórn Akraness, þá óska ég meðlimum hennar til hamingju með að hafa tekið ákvörðun, byggða á mannúðarsjónarmiðum. Átti eiginlega ekki von á því úr þeirri áttinni. Það undrar mig þó eiginlega meira að þú hafir ekki áttað þig á því hvað það væri gott "photo op" að láta mynda sig við að taka á móti flóttafólki með opnum örmum.
Kveðja frá Kaupmannahöfn
Harpa Guðmundsdóttir
Eg er svo algerlega sammála þér Magnús í því sem þú hefur sagt um þetta mál, held að þessi ríkisstjórn ætti að hlusta og taka mark á könnunum, þær segja margt um það sem koma skal! Hef sjálf lent í að vera spurð hvað mér þætti um útlendinga sem hér væru komnir og ég sagði að mér þætti vera komnir of margir á stuttum tíma og fyrir þetta átti að berja mig og sögð rasisti. Þetta sýnir jú bara að fólk þorir ekki að segja skoðun sína þá fær það rasista stipilinn. Haltu bara áfram að tala fyrir þá sem þora ekki. Þú ert frábær.
Ég vil bara segja þér það Magnús að ég efast um að þú vitir hvað þú talar fyrir munn margra hér á landi. Allavega fyrir mig og flestra sem ég þekki. Það þorir enginn að segja sína skoðun lengur þá fær maður rasista stimpilinn um leið, en það er alltof mikið af útlendingum komnir hér á alltof stuttum tíma. Ég er sammála þér með að það væri nær að aðstoða þetta fólk heima hjá sér heldur en að vera að flytja það milli heimsálfa.
Hver ætli hafi borgað fyrir þennan líka myndarlega bækling um komu flóttafólks til Akraness? Kanski bæjarsjóður sem engann kosnað á að bera???
Það er sorglegt að sjá að það má bara vera ein skoðun á málinu. Sú skoðun sem meirihluti bæjarstjórnar velur, óháð skoðun fólksins. Hef hitt þónokkuð marga hér á Skaga sem eru ekki sáttir, þrátt fyrir fullyrðingar Karenar um annað!
Skrifa ummæli