
Ég fór á bæjarstjórnarfund í gær. Fékk mér sæti á fremsta bekk og horfði á valdarán eiga sér stað.
Myndina hér fyrir ofan tók ég með farsímanum. Hún sýnir nýja "meirihlutann" í bæjarstjórn Akraness. Hann hefur 37 % atkvæða Akurnesinga á bak við sig ef miðað er við kosningaúrslit 2006. Fylgi hans er örugglega minna í dag.
Þarna sjáum við Gunnar Sigurðsson forseta bæjastjórnar á bak við hurð, Sjálfstæðisflokksþokkaparið hið nýja:; Gísla S. Einarsson og Karen Jónsdóttur, Þórð Þ. Þórðarson (sem grúfir andlitið í höndum sér), Ingþór B. Þórhallsson vara-vara-vara bæjarfulltrúa og Harald Helgason fyrrverandi vara-vara bæjarfulltrúa og núverandi bæjarfulltrúa.
Á fundinum var lesin upp yfirlýsing um að nýr "meirihluti" væri tekinn við. Þar með er komin upp sú staða að Gísli S. Einarsson og Karen Jónsdóttir hafa náð kverkataki á Sjálfstæðisflokknum á Akranesi þar sem þau munu nú draga hann ofan í djúpa keldu.
Samkvæmt útsendri dagskrá stóð til að kjósa í nefndir, stjórnir og ráð á vegum bæjarins. Þau urðu að fresta því til næsta bæjarstjórnarfundar sem er á mánudag. Þetta sýnir að "nýji meirihlutinn" er svo veikur að þau eiga í vandræðum með að finna fólk í nefndirnar í stað þeirra af lista Frjálslyndra og óháðra sem nú verður sparkað út. Enda er það bara þannig að 14 af 18 á þeim lista hafa lýst óskoruðum stuðning við þann málstað sem ég hef sett fram.
Fólk veit líka sem er að "nýji meirihlutinn" er svo óvinsæll og illa þokkaður í bænum að það eru hverfandi litlar líkur á að nefndastörf fyrir hann verði mjög ánægjuleg. En það verður gaman að sjá hverjir ætla að vinna undir stjórn Gísla S. Einarssonar og Karenar Jónsdóttur.
Þessum "meirihluta" og öllum hans nefndum, ráðum og stjórnum verður að sjálfsögðu veitt mikið og gott aðhald af Frjálslynda flokknum, með greinaskrifum á neti og í blöð, ræðuhöldum, fundastarfi og öðrum þeim aðferðum sem lýðræðið býður upp á í nútíma samfélagi.
Nefndafólk nýja "meirihlutans" getur búið sig undir að þar verður ekkert gefið eftir.
laugardagur, 17. maí 2008
Valdaræningjar finna ekki fólk í nefndir
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hætta á að það næði nú smá um "meirihlutann" eða á maður að segja " (hallar)byltingarsettið? Kannski maður leggi í púkk fyrir treflum og svoleiðis fyrir greyin,ekki mun þeim veita af að manni sýnist.Ja,svei attan!!
Geta ekki einhverjir innanbúðar í Sjálfstæðisflokknum á Akranesi stoppað þetta rugl?
Þó ég sé nú pólitískur andstæðingur flokksins í landsmálum og nú í bæjarmálum líka, þá finnst mér agalegt að horfa upp á minn gamla samstarfsflokk í bæjarstjórninni láta fara svona með sig.
Ég trúi bara ekki öðru en margt af því ágæta fólki sem skipað hefur Sjálfstæðisflokkinn hér á Akranesi sé ósátt við það sem er að gerast.
Skrifa ummæli