Það er undarlegt hvernig siðblindir og siðspilltir stjórnmálamenn geta alltaf leitað hælis í Sjálfstæðisflokknum.
Nú í morgun barst sú frétt að Karen Jónsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi væri gengin í þennan flokk. Sömuleiðis Gísli Einarsson bæjarstjóri.
--------------------------
Sjaldan launar kálfurinn ofeldið. Karen var í fyrsta sæti hjá F-listanum á Akranesi við bæjarstjórnarkosningar fyrir tveimur árum. Hún var það fyrir mín orð. Við vorum góður hópum sem bjó til framboðslista og við skelltum okkur í bæjarstjórnarslaginn. Þetta var og er gott lið - með örfáum undantekningum sem eru Karen og Helga systir hennar. Sennilega er ekki ofmælt að ég hafi verið potturinn og pannan á bak við það framboð. Hin voru öll algerlega óreynd í pólitík. Ég kenndi þeim og leiðbeindi. Á framboðsfundum var það ég sem hélt ræðurnar. Karen Jónsdóttir hefur aldrei geta haldið skammlausa ræðu eða skifað pólitíska grein. En ég taldi rétt að hafa hana í fyrsta sæti. Gefa ungri konu tækifæri og allt það....
Karen var "óháð" í fyrstu. Ég var ekkert að pressa á hana að ganga í Frjálslynda flokkinn. Hef alltaf talið það farsælast að fólk gengi í flokkinn að eigin hvötum - ekki fyrir þrýsting. Hún gekk svo í flokkinn að loknum kosningum.
Í aðdraganda Alþingiskosninga fyrir rúmu ári skarst í odda. Hún heimtaði að einhver frá Akranesi færi í annað sæti á framboðslista Frjálslynda flokksins í Norðvestur kjördæmi. Lýðræðisleg niðurstaða kjördæmisráðs var hins vegar sú að Kristinn H. Gunnarsson færi í það sæti. Karen Jónsdóttir brást við með því að segja sig úr Frjálslynda flokknum. Hún um það. Takið eftir; - þetta var ekki málefnaágreiningur - þetta var ágreiningur um persónu.
En það fennti yfir þetta og við sættumst þó ekki gengi hún aftur í flokkinn. Og ég ekki að pressa neitt á það. Fólk sem segir sig úr stjórnmálaflokkum vegna þess að það fær ekki viljan sinn í metingi um trúnaðarstöður er ekki eftirsóknarvert í flokksstarfi.
Og nú gengur hún í Sjálfstæðisflokkinn. Hún hirðir það umboð sem Frjálslyndum og óháðum var falið af kjósendum fyrir tveim árum og fer með það yfir í annan flokk. Telur sig væntanlega komast upp með þetta - að svíkja bæði kjósendur og félaga sína með þessum hætti.
Ég velti því fyrir mér hvernig hún muni nú geta litið framan í meðborgara sína á Akranesi eftir þetta? Skagamenn eru í grunninn gott fólk og heiðarlegt. Þeir kunna vart að meta svona. Ég þekki mitt heimafólk.
----------------------
Um hann Gísla S. Einarsson bæjarstjóra gildir önnur saga en þó merkilega svipuð Karenar þegar að er gáð. Sannast þar hið fornkveðna að "sækjast sér um líkir".
Ég opnaði leið fyrir hann til að verða bæjarstjóri fyrir tveim árum síðan. Hann hafði svikið félaga sína í Samfylkingunni. Ekki vegna málefnaágreinings - heldur vegna þess að hann var ekki settur nógu ofarlega á framboðslista til Alþingis. Í aðdraganda bæjarstjórnarkosninga hafði hann lýst sig sem bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins.
Íhaldið ætlaði að fiska á karlinn. Ég hjólaði í hann í kosningabaráttunni, enda ljóst að framboð hans gat ógnað Frjálsyndum og óháðum. Eftir að við unnum góðan sigur og vorum að sigla inn í meirihluta sá ég aumur á karlinum. Ég man alltaf eftir því þegar við Karen Jónsdóttir fórum og hittum Gunnar Sigurðsson oddvita Íhaldsins og Sæmund Víglundsson bæjarfulltrúa á heimili Gunnars kosninganóttina til að ræða hugsanlegan möguleika á meirihluta. Ég hafði átt frumkvæði að þeim viðræðum með því að hringja í Gunnar um leið og fyrstu tölur bárust.
Það fyrsta sem Gunnar sagði við okkur þegar við höfðum sest í sólstofuna hjá honum var að það væri ekkert atriði fyrir Sjálfstæðisflokkinn að Gísli S. Einarsson yrði bæjarstjóri. Með öðrum orðum; Sjálfstæðisflokkurinn var reiðubúinn að svíkja bæjarstjóraefni sitt á Akranesi fyrir það að komast í meirihluta!
Ég sagði ekkert - en þótti þetta harkalegt. Mér fannst Gísli ágætis karl, hann gjörþekkti Skagann og hafði mikla reynslu af félagsmálum bæði í sveitarstjórn og á Alþingi. Bæjarstjóraspurningin var opin, en þegar Sjálfstæðismenn stungu upp á því tveim dögum eftir kosningar að Gísli yrði bæjarstjóri þá samþykkti ég það. Ég kenndi að vissu leyti í brjósti um karlinn. Hann sem fyrrverandi þingmaður var í volæði inni í álveri á Grundartanga. Nöturleg örlög fyrir gamla manninn. Hvers vegna ekki að leyfa karlinum að spreyta sig?
Ég sagði JÁ, og frelsaði Gísla þar með úr rykinu í álverinu.
Nú hefur hann heldur betur launað fyrir sig því ég veit að hann er búinn að vera að "lobbýa" fyrir því að Akranes taki við 60 flóttamönnum frá Írak. Vitandi það að slíkt myndi eflaust eyðileggja meirihlutann á Akranesi. Hvað honum gekk til veit ég ekki. Gísli er ekki mjög snjall maður, en ég vissi þó ekki að hann væri svona illa innrættur. Þarna eru aðrir spunakarlar og kerlingar að baki og þetta lyktar af samsæri úr herbergjum ónefndra ráðherra. Samsæri til að koma höggi á Frjálslynda flokkinn. En þeim mun ekki verða kápan úr því klæðinu.
-----------------------
Ég er eiginlega mest hissa á því að Sjálfstæðismenn á Akranesi skuli nú láta draga sig út á það fen sem nú er framundan. Þau eru að gera sömu mistök á Akranesi og flokkurinn hefur gert í Reykjavík.
Þar hlýtur Gunnar Sigurðsson að bera þyngsta ábyrgð þegar upp er staðið. Óheilindi í pólitík koma alltaf í bakið á mönnum. Ég og við hin á lista Frjálsyndra og óháðra á Akranesi höfum tekið þátt í þessu meirihlutasamstarfi af fullum heilindum og einurð. Enda er það svo að okkur hefur tekist að koma nær öllum okkar kosningaloforðum í verk á fyrstu tveimur árum kjörtímabilsins.
Gunnar Sigurðsson hefur sýnt af sér mikil óheilindi í samskiptum við mig og Frjálslynda flokkinn. Mér þykir það leitt því ég hef metið Gunnar mikils. Hefur þótt hann fara vaxandi í samskiptum. Hið sama má segja um margt af því fólki innan Sjálfstæðisflokksins sem vinnur að bæjarmálum á Akranesi.
Skömm þeirra sem koma í bakið á samstarfsflokki með þessum hætti og síðan aftur í bak kjósenda og íbúa á Akranesi með því að samþykkja nú móttöku á 60 flóttamönnum frá Írak verður lengi í minnum höfð á Skaganum.
Aumingja allt þetta fólk - sagan á eftir að dæma það hart.
En fyrst kemur dómur kjósenda eftir tvö ár.....
miðvikudagur, 14. maí 2008
Valdarán á vordegi
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
13 ummæli:
Magnús...
Af hverju í ósköpunum að væna fólk um illt innræti og siðleysi af því að það er ósammála þér??
Þú er betur gefinn en svo. Eða það hélt ég.
Af hverju ekki að berjast fyrir málstað þínum meðal bæjarbúa frekar. Ef það er svona mikill stuðningur við málstað þinn eins og þú vilt vera láta þá er örugglega auðvelt að fá fólk til að standa upp og mótmæla.
Og þó svo ég þekki ekkert til bæjarmála á Akranesi þá finnst mér þú tala af óskaplegum hroka um Karenu og Gísla. Eins og þau eigi tilveru sína þér að þakka. Alveg er ég viss um að þau eru þar sem þau eru af verðleikum sínum en ekki vegna náðar og vorkunsemi þinnar.
Það hlýtur að gefa ákveðinn þverskurð af afstöðu bæjarbúa að allir bæjarfulltrúar.. í meirihluta og minnihluta lýsa stuðning sínum við að taka á móti flóttafólki.
Ég verð líka að segja að mér fannst þú koma illa út í Kastljósi í kvöld. Oftast ertu skeleggur og málefnalegur. En á stundum týnirðu sjálfan þér að því mér finnst. Eins og þú vitir að þú sért að verja vondan málstað. Það kann aldrei góðri lukku að stýra að væna fólk um illsku eða siðleysi bara af því það vogar sér að vera ósammála.
Þett er áhugaverð lesning Magnús. Segir meira um þig en nokkurntíma hvernig manneskja Karen er. Átti Karen semsagt að hlíða þér í einu og öllu og vera sammála þér í hvert einasta skipti sem þú opnaðir munninn?
Var það kannski ástæðan fyrir því að þú "lést" hana fá fyrsta sætið
Góð grein. Það virðist vera mikið um tilhæfulausar árásir gegn frjálslynda flokknum frá ýmsum vígstöðum.
-Johnny Rebel
Það sárvantar fólk eins og þig í pólitík, alltof mikið af já mönnum og fólki sem hrópar "kynþáttahatur" og "fordómar" þegar það þorir ekki að horfast í augun við raunveruleikan.
Það er greinilegt að það á ekki að taka á þeim vandamálunum sem eru hérna heima, heldur á að flytja inn flóttafólk með hundruði milljóna kosnaði!
Hvað er að!!!???
Sæll Magnús. Það er ekki að spyrja að því að þú ert samkvæmur sjalfum þér, og er alveg óþolandi að svona fólk komist upp með þessa hegðun. Ég vona að þú sækir rétt þinn fyrir þau meinyrði sem skessan lét falla. Fólk fer þá kanski að sjá að það kemst ekki upp med allt i frekju og yfirgangi. Ein athugasemd til þin, i sambandi við aldurstakmark a tjaldsvæðið, svona höft eru ekki æskileg og sennilega mannréttinda brot. enn nóg um það kv Mikki trukkabilstjori.
Það eru margir hérna á Akranesi þér þakklátir fyrir að berjast fyrir þeirra réttindum og án efa þessar 25 einstæðu mæður sem sjá fram á að lenda enn aftar á biðlistum eftir félagslegri aðstoð. Sennilega detta þær aftur um 30 í röðinni eftir félagslegu húsnæði.
Í næstu kosningum verður þér launað þessi barátta fyrir fólkið hér á Akranesi. Bíddu bara og sjáðu.
Með vinsemd og virðingu
Skagamaður
Hafi ég skilið þessa góðu grein rétt þá var Karen efst á lista fyrir orð Magnúsar og Gísli bæjarstjóri sömuleiðis. Magnús Þór Hafsteinsson virðist þannig hafa fullt vald á allri pólitískri atburðarás á staðnum en enga dómgreind.
Engu skiptir þó að dómgreindarlausir séu samkvæmir sjálfum sér og það er alls ekki vöntun á þeim í pólitík.
Þú birtir semsagt bara comment frá fólki sem er sammála þér???
Þú ert nú meiri kallinn
Sjálfumgleði og tækifærismennska stjórnmálamanna almennt, lýsa sér skratti vel í þessari grein þinni. Ekki sízt þinni eigin!
Bú hú hú. En er það almenn lýsing þín á störfum í Norðurál að menn hangi þar í einhverju volæði.
það móttu nú eiga að þú ert algjört fífl
Miðað við hvað þú hrósar sjálfum þér gríðarlega í þessari grein.
Og átt heiðurinn að öllu sem vel hefur verið gert á Skaganum.
Þá má ég til með að spyrja, fannstu líka upp Internetið og Jarðvarmann ?
Líkt og tveir ónefndir pólitíkusar, sem eru í sama lágklassa og þú.
ógeðslega fyndið að sjá að þú leyfir bara lofsamlegar athugasemdir en ekki gagnrýni á þig.
Þú ert svo innilega lýðræðislegur
Skrifa ummæli