fimmtudagur, 15. maí 2008

Spörfuglar í flokki ránfuglsins

Ég vil byrja á að þakka fyrir þann ótrúlega mikla stuðning sem ég fann fyrir í allan gærdag og gærkvöld. Síminn stoppaði ekki hjá mér. Sérstaklega þakka ég stuðninginn frá íbúum á Akranesi.

Það var giska áhugavert að sjá sjónvarpsmyndir í gærkvöld af þrjú þúsundasta bæjarráðsfundi þar sem valdarán Sjálfstæðisflokksins í bænum var kórónað - í bili.

Þarna sátu þeir bæjarfulltrúarnir sem allir sem einn ætla nú að koma í bakið á kjósendum á Akranesi með því að samþykkja grundvallarbreytingu á velferðarstefnu bæjarins á miðju kjörtímabili. Án þess að það hafi nokkuð fengist rætt meðal íbúa og eigenda bæjarsjóðs - hvað þá heldur að þeim hafi verið gefinn kostur á að segja sína skoðun á málinu með lýðræðislegum hætti í kosningu.

Í öllu þessu er falin sú staðreynd að nú hefur verið gerð tilraun til að sparka eina bæjarfulltrúanum sem spurði eðlilegra spurninga við þetta allt saman út úr bæjarstjórn. Glæpur hans var að segja bæjarbúum frá því hvað væri í aðsigi og reyna að vara þá við. Ég og aðrir kjörnir fulltrúar á lista Frjálslynda flokksins sem eru sammála stöðumati sem fram kemur í minnisblaði mínu, fáum nú að uppskera með því að okkur verður fleygt úr öllum nefndum á vegum bæjarins.

Svona er nú illa komið fyrir lýðræðislegri umræðu og vandaðri stjórnsýslu á Skaganum.

Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi getur verið stoltur af verkum sínum. Hann er nú orðinn eins og hver önnur drusla í höndunum á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Jóhönnu Sigurðardóttur, Guðrúnu Ögmundsdóttur og Gísla S. Einarssyni. Og bæjarbúar fá að borga brúsann.

Ákvörðun um að taka á móti 30 íröskum flóttamönnum hefur í raun verið tekin og í því felst að þeir eiga að verða 60 þegar upp verður staðið. Þeir eiga þá að koma á tveimur árum. Allt tal um að samþykkt sé að taka á móti 30 er bara blekking til þess ætluð að slá ryki í augu bæjarbúa á Akranesi.

Ég mætti Gísla S. Einarssyni bæjarstjóra tvisvar í fjölmiðlum í gær til umræðna um þetta mál. Í fyrra skiptið á síðdegisútvarpi Rásar 2. Þar talaði Gísli af sér. Hann upplýsti að búið væri að taka ákvarðanir í málinu í samráði við félagsmálaráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur. Það hefur þá verið gert framhjá öllum stjórnsýslustofnunum bæjarins, svo sem félagsmálaráði, bæjarráði og bæjarstjórn.

Í seinna skiptið mætti ég Gísla síðan í Kastljósi.

Í báðum þessum þáttum kom berlega í ljós að bæjarstjórinn á Akranesi á ekki að tjá sig í fjölmiðlum. Maðurinn er skelfilegur talsmaður. Hann laug ítrekað í þættinum á Rás 2, var illa undirbúinn, taugaóstyrkur og allur í klessu. Í Kastljósinu var hann sömuleiðis Akranesbæ til lítils sóma. Hann datt meira að segja út á tímabili, sat stjarfur, góndi út í loftið og hætti að fylgjast með.

Bæjarstjórinn á Akranesi er í raun persónugerfingur nýja "meirihlutans" sem er ákaflega veikur "meirihluti". Gunnar Sigurðsson oddviti Sjálfstæðismanna og forseti bæjarstjórnar hafði greinilega ekki manndóm eða burði í sér til að mæta í fjölmiðla í gær, en sendi Gísla garminn í staðinn.

Karen Jónsdóttir þurfti að lesa stamandi og hikstandi upp af handskrifuðum miða þegar kom að því hjá henni að reyna að skýra kjósendum í beinni fréttaútsendingu sjónvarps frá því hvers vegna hún hefur svikið þá. Hrikalegt að horfa upp á þetta.

Þetta fólk mun aldrei geta byggt upp ímynd Akraness sem sterks sveitarfélags. Hin "hreini meirihluti" Sjálfstæðisflokksins er afar veikur. Það er ekki nóg með að hann sé skipaður veikgeðja einstaklingum sem ekki eru stjórntækir í samstarfi, - heldur eru þeir líka reiðubúnir að láta ríkisvaldið valtra yfir hagsmuni bæjarbúa hvenær sem er.

Þessi "meirihluti" hefur aðeins 37 prósent greiddra atkvæða úr kosningunum 2006 á bak við sig.

"Valdaræningjar" er því rétta orðið yfir þetta lið.

Meira síðar í dag....

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta eru ódrengileg skrif og þér ekki til sóma. Eitt er að vera ósammála og annað að veitast að persónulega að andstæðingi. Það meir að segja karlrembingur í skrifum þínum. Dapurlegt ef þú trúir því að þú sért að gera rétt og þjónusta samfélagið. Jafnvel stríðsmenn hér í Eyjafirði eru að leggja niður vopn. Ég ætti að gleðjast en geri það ekki.

Nafnlaus sagði...

Sæll Magnús
Styð þinn málstað í þessari baráttu. Get ekki séð að það sé Íslenskum hagsmunum fyrir bestu að fá hingað um 60 flóttamenn, svo sannarlega muna bara ýta enn meira á að þau "Íslensku gildi, kristin eða önnur manngildi" verði ýtt útaf borðinu, smátt og smátt.
Það get ég aldrei samþykkt.
Hitt er annnað, að í gærkvöldi í Kastljósi, nefndi Gísli það að þetta hefði verð kynnt tvisvar í bæjarráði, einu sinni óformlega og eins sinni formlega og hvorugt skiptið átti að hafa komið athugasemd frá þér.
Er það rétt ?
Ef svo er , ert þú þá ekki að láta heyra í þér full seint ?

Sigfús

Nafnlaus sagði...

Sæll Magnús.
Ég las minnisblaðið sem þú ert með tengil á hér í greininni. Ég er sammála þér í því að það er óeðlilegt að setja flóttafólk í forgang fyrir þjónustu þegar bærinn nær ekki að sinna sínum eigin bæjarbúum að fullu.
Ég veit að t.d. í Finnlandi hafa komið upp vandamál tengd innflytjendum. Það felst helst í því að þeir fá að komast upp með að haga sér eins og í heimalandinu. Finnar segja að við eigum ekki að lúffa, ekki leyfa innflytjendum að fá sitt fram á kostnað okkar sérkenna. Það er einmitt nefnt hér að hjálpa fólki að aðlagast íslenskum aðstæðum. Pössum okkur þá á því að þau aðlagist íslenskum aðstæðum en reyni ekki að láta okkur aðlagast þeirra aðstæðum.
Ég veit að þetta hljómar eins og ég sé rasisti en það er ekki meiningin. Við skulum aðeins hugsa þetta á hinn veginn. Ef við þyrftum að flytja til Palestínu, haldiði að við fengjum að haga okkur eins og Íslendingar? Ég er nokkuð viss um að svo er ekki. Konur yrðu skikkaðar til að hylja sig o.s.frv.
Mér finnst sjálfsagt að hjálpa fólki og ég vil því að við byrjum í okkar eigin garði. Ég er líka viss um að það er auðveldara fyrir fólk að aðlagast ef það er ekki of stór hópur saman.
Bestu kveðjur úr Rangárþingi,
Óðinn Burkni

Magnús Þór sagði...

Ég vek athygli á mjög gott viðtal við Guðjón Arnar Kristjánsson formann Frjálslynda flokksins frá því í morgun, hlutið hér:

http://bylgjan.is/?PageID=1857

Magnús Þór sagði...

"mjög góðu viðtali" átti það að vera. Afsakið innsláttarvillu.

Nafnlaus sagði...

"Í öllu þessu er falin sú staðreynd að nú hefur verið gerð tilraun til að sparka eina bæjarfulltrúanum sem spurði eðlilegra spurninga við þetta allt saman út úr bæjarstjórn."

Hvaða bæjarfulltrúi er það? Hvern þessara áttu við:

Gunnar Sigurðsson (D)
Sveinn Kristinsson (S)
Guðmundur Páll Jónsson (B)
Karen Jónsdóttir (F)
Rún Halldórsdóttir (V)
Eydís Aðalbjörnsdóttir (D)
Hrönn Ríkharðsdóttir (S)
Þórður Þ. Þórðarson (D)
Haraldur Helgason (D)

Nafnlaus sagði...

Fyrirfram hefði ég haldið að mótmæli þín myndu ekki valda neinu fjaðrafoki. Þvílík læti. Það væri í sjálfu sér verðugt viðfangsefni fyrir fræðimenn.Hvað fór svona illa í þjóðarsálina?

Nafnlaus sagði...

Konur eru ekkert skikkaðar til þess að "hylja sig" í Palestínu og þar búa líka kristnir.

Alveg merkilegt hvað fólk getur verið illa upplýst og samt talið sig hæft til þess að tjá sig um alla skapaða hluti. Lýðskrumarar eins og Magnús kynda svo undir ósómann.

Á mannamáli heita þetta fordómar, Óðinn.