laugardagur, 17. maí 2008

Akurnesingum afhjúpast leyniskjal!

Á mánudaginn verður haldinn aukafundur í bæjarstjórn Akraness. Þar á að gera aðra tilraun til að kjósa í nefndir og ráð á vegum bæjarins. Það verður gaman að sjá hvernig valdaræningjarnir Gunnar Sigurðsson, Gísli S. Einarsson og Karen Jónsdóttir (sjá mynd) munu skipta þýfinu á milli sín.


Í fundarboði sem ég fékk sent í gær sem varabæjarfulltrúi, kemur fram að fjórði og síðasti liður er "móttaka flóttamanna". Þar ætlar bæjarstjórnin væntanlega að taka afstöðu til samþykktar vegna 17. liðar frá fundi bæjarráðs þann 6. maí síðastliðinn. Það er:

Bréf flóttamannanefndar félags- og tryggingamálaráðuneytisins, dags. 28.4.2008, þar sem þess er farið á leit við bæjarstjórn Akraneskaupstaðar að sveitarfélagið taki á móti hópi flóttafólks, allt að 30 einstaklingum á árinu 2008. Einnig er gert ráð fyrir að sveitarfélagið taki á móti hópi fólks á árinu 2009.

Með bæjarstjórnarfundarboðinu sem kom í gær fylgir tveggja síðna minnisblað frá Rauða krossinum á Akranesi vegna þessa máls. Í haus beggja síðnanna stendur skrifað; "Aðeins ætlað bæjarfulltrúum - ekki til dreifingar".

Að sjálfsögðu dettur mér ekki í hug að fara eftir þessum fyrirmælum frá Rauða krossinum til bæjarfulltrúa á Akranesi, um það hvað þeir megi sýna umbjóðendum sínum sem eru kjósendur, eigendur bæjarfélagsins og bæjarsjóðs. Þetta mál varðar almannaheill á Akranesi. Leyniskjal Rauða krossins á Akranesi sýnir forkastanleg vinnubrögð í málinu. Því birti ég það hér á Eyjunni.

Lesa má fyrri síðu þess með því að smella hér.

Lesa má síðari síðu þess með því að smella hér.

Þetta minnisblað er eina skriflega plaggið sem bæjarfulltrúar á Akranesi hafa á milli handanna þegar þeir ætla að greiða atkvæði um móttöku flóttafólksins - sem þeir segjast ætla að samþykkja. Maður fær kalt vatn á milli skinns og hörunds þegar það er lesið. Ástæðan er sú að í því eru nánast engar upplýsingar sem skipta máli í svona mikilli og afdrifaríkri ákvörðun. Förum aðeins yfir þetta:

- Í lið 2 segir (feitletrun mín): "Flóttafólkið sem kemur til Akraness í haust...." Hér er beinlínis afhjúpað af framkvæmdastjóra Rauða krossins á Akranesi að það er búið að ákveða að flóttafólkið fari til Akraness. Þetta hefur þá verið gert án þess að málið hafi verið tekið fyrir til ákvörðunar í bæjarstjórn. Bæjarráð hefur ekki komið með neina afstöðu, félagsmálaráð bæjarins hefur ekki veitt neina umsögn. Eini sveitarstjórnarmaðurinn sem hefur skilað inn umsögn vegna þessa máls er ég; - Magnús Þór Hafsteinsson. En samt er búið að taka ákvörðun, án þess að til að mynda nokkrum þeim spurningum sem ég hef lagt fram í vandaðri greinargerð hafi verið svarað. Afstaða bæjarstjórnar á bæjarstjórnarfundi fyrir opnum tjöldum nú á mánudag, verður ekkert annað en málamynda leiksýning ætluð til að blekkja bæjarbúa.


- Í lið 3 stendur: "Gera má ráð fyrir því að hingað komi mæður og börn á leikskóla-, gunnskóla- og hugsanlega framhaldsskóla aldri. Nánari upplýsingar um fjölskyldusamsetningu flóttafólksins hefur flóttamannanefnd ekki haldbæra......". Þetta þýðir það að bæjarfulltrúar hafa engar upplýsingar um fólkið. Samt á að segja já við því að Akranesbær taki að sér 30 manns nú síðsumars, sem aftur mun þýða 30 manns á næsta ári. Þetta án nokkurrar umræðu eða könnunar á því hvort sveitarfélagið sé yfir höfuð með innviði sem þola þetta álag. Hvergi hefur verið leitað umsagna í heilbrigðisþjónustu, hjá skólum eða öðrum stofnunum innan bæjarins sem bera eiga álagið. Enginn veit hvar fólkið á að búa á sama tíma og 25 fjölskyldur bíða eftir félagslegum íbúðum á Akranesi.

Áfram má lengi telja í þessu makalausa plaggi. Ég hvet íbúa Akraness sérstaklega til að kynna sér innihald þess vandlega. Þessi pappír er það eina sem bæjarfulltrúar ykkar ætla að hafa í höndunum við ákvarðnatöku sem verður mjög afdrifarík fyrir bæjarfélagið verði þetta samþykkt.

Að lokum bendi ég á að höfundur þessa minnisblaðs er Anna Lára Steindal. Hún er framkvæmdastjóri Rauða krossins á Akranesi. Jafnframt er hún varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og á sæti fyrir hönd flokksins í félagsmálaráði Akraness.

Sveinn Kristinsson oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akraness er jafnframt formaður Rauða kross deildarinnar á Akranesi.

Báðir þessir sveitarstjórnarmenn hafa tekið virkan þátt í því að þvinga flóttamannahópana upp á Akurnesinga. Rauði krossinn á Akranesi mun væntanlega fá í sínar hendur milljóna tugi króna fyrir að sinna þessu verkefni næstu árin. Anna Lára og Sveinn eru báðu megin við borðið í þessu máli.

Máli sem lyktar langar leiðir af pólitískum hrossakaupum, hræsni og svo vondri stjórnsýslu að það vakna hreinlega upp mjög alvarlegar spurningar - mun alvarlegri en ég hef spurt til þessa.

14 ummæli:

Hlynur Þór Magnússon sagði...

Æ, ágæti Magnús. Lestu nú endilega „leyniskjalið“ svo að þú áttir þig betur á þeirri skelfilegu vá sem vofir yfir Akraneskaupstað og íbúum hans (sem eru vel á sjöunda þúsund). Og lestu líka kannski aftur færsluna mína í gær ...

Nafnlaus sagði...

Þetta flóttamannadæmi er löngu ákveðið "pólitískt" plott af Samfylkingunni og gert til þess að koma þér Magnús fyrir kattarnef! Svo á að stympla málflutning þinn þ.a. útilokað verði fyrir aðra flokka að starfa með Frjálslyndum. En mér sýnist á skoðanakönnunum að plott Samfylkingarinnar sé að snúast upp í andhverfu sína!

Nafnlaus sagði...

Já manni rennur svo sannarlega kalt vatn milli skinns og hörunds við að lesa pistlana þína.

Nafnlaus sagði...

Það var nú reyndar Karen Jónsdóttir sem afhjúpaði í fréttum sjónvarps í liðinni viku að tekið yrði á móti flóttamönnunum. Framkvæmdstjóri Rauða krossins er ekki að segja bæjarfulltrúunum nýjar fréttir þarna.

Kveðja,
Bjarni Gunnarsson

Nafnlaus sagði...

Jæja Mangi minn. Er þetta nú allur glæpurinn. "Leyniskjal frá Rauða krossinum". Þú verður að fyrirgefa að ég sé nú ekki þessa stórpólitísku spillingu við það að Sveinn Kristinsson sé félagi í Rauða krossinum. Ekki frekar en þú tókst þátt í því að undirbúa byggingu nýrrar sundlaugar og fjárveitingu til íþróttafélaga. Common Magnús. Hættu nú þessu bulli. Þetta fólk mun ekki einu sinni nýta íbúðarhúsnæði bæjarins!!!!. Hvert er vandamálið? Sennilega að þú hefðir mátt standa þig betur sem formaður félagsmálaráðs. Það mál er jú að leysast á næstu dögum. Trúir þú því sjálfur að Sjálfstæðisflokkurinn eigi í erfiðleikum með að manna nefndir? Hver var í erfiðleikum með að manna framboðslista við síðustu kosningar? Svona svona Mangi minn.

Nafnlaus sagði...

Málflutningur þinn lyktar langar leiðir af óvild í garð útlendinga. Öll bæjarstjórnin er á annari skoðun en þú - er ekki komin tími til að þú áttir þig á þeirri staðreynd.

Nafnlaus sagði...

Anna Lára og Sveinn eru bæði í flokk sem er í minnihluta í bæjarstjórn, þar af leiðandi hafa þau engin tök á ákvaðarnatöku í þessu máli. Ef þau væru hins vegar í meirihluta teldi ég ástæðu fyrir þau að lýsa sig frá málinu innan bæjarstjórnar. Þú getur varla talist báðum megin við borðið, ef þú ert ekki í aðstöðu til að taka ákvarðanirí málum.

Eggert Herbertsson

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...

Sæll Magnús

Sem óflokksbundinn áhugamaður um bætta stjórnsýslu
er ég SAMMÁLA þér Í þessu tiltekna máli um að betur þurfi að standa að undirbúningi að móttöku flóttamanna til landsins.

Ég vildi bara koma þessu á framfæri við þig eftir að hafa horft á SilfurEgils þar sem reynt var að snúa útúr málflutningi þínum með ómaklegum hætti að mér fannst.

Gangi þér vel

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...

Nú ert þú Magnús kominn út um víðan völl og á vafasamar brautir.
Að reyna að gera Rauða krossinn tortryggilegan finnst mér fyrir neðan allar hellur.
Þú þyrftir að hafa einhverja pólitíska ráðgjafa en ekki eingöngu já ara í kringum þig.
Þetta skjal er ágætt svo langt sem það nær.Svipað skjal verður vonandi sent inn á hvert heimili á Akranesi því fyrr því betra.

Magnús Þór sagði...

Það er ekkert rangt við það að sýna Akurnesingum hve stjórnsýslan er rotin í kringum þetta mál.

Dapurlegt að forystufólk Rauða krossins skuli ekki hafa skynjað að þau gætu varpað skugga á samtökin með afskiptum sínum af málinu sitjandi báðu megin borðsins. Þau hafa nóg af varamönnum til að kalla inn í staðinn fyrir sig vegna þessa máls.

Nafnlaus sagði...

Magnús. Það er með ólíkindum að halda að Rauði krossinn græði á þessu, starfsmenn félagsins eða félagið sjálft. Það er fáheyrt í heiminum að ráðist sé á Rauða krossinn! Ætlar þetta engan endi að taka hjá þér. Ég heyrði þig segja á ráðstefnu á Ísafirði sem haldin var af Fjölmenningarsetrinu og Háskólasetrinu í vor og bar yfirskriftina; Eru útlendingar ógn eða hvalreki. Þú sagðir á ráðstefnunni að þú vildir vernda hið íslenska yfirbragð. Mér var þá litið á frænku mína sem sat mér við hlið og er frá Hornströndum, dökk á brún og brá. Sennilega hafa Frakkar verið að þvælast þar á árum áður á skútum, svo frænka mín getur þakkað Frökkunum sitt Hornstrendinga yfirbragð.
Eitt enn:
Þú þarft ekkert að vita allt um fólkið áður en það kemur, hvorki skónúmer, háralit eða annað. Þetta er bara fólk.
Það er undarlegt að þú skulir alltaf ræða þjóðerni flóttafólksins eins og það skipti einhverju máli.
Hvað kemur næst? Ætlar þú að reyna að koma í veg fyrir að fatlaðir flytjist til Akraness? Þeir þurfa þjónustu.
Nei í alvöru þetta nær engri átt.
Kveðja.
Atli Jónsson, dökkhærður og brúneygur Hornstrendingur.

Magnús Þór sagði...

Undarlegt að sjá einhvern Hornstrending æða hér upp á dekk talandi um háralit og augnalit, ýjandi að því að aðrir séu með kynþáttafordóma. Alltaf þegar ég hlusta á svona fólk þá horfi ég á það afhjúpa eigin minnimáttarkennd og fóbíur.

Ég tala aldrei um svona lagað en má samt vera sá sem situr uppi með ásakanir um að vera "kynþáttahatari".

Merkilegt. Ég held að þið fjölmenningarpésarnir séuð hreinlega að reyna að búa ykkur til andstæðinga til að réttlæta tilveru ykkar og endalausar sníkjur í opinbera sjóði.

Ég man eftir þessum fundi á Ísafirði. Frekar hallærisleg tímasóun ef ég man rétt. Hafi ég sagt að ég vildi vernda hið íslenska yfirbragð þá var ég að meina menningararf og tungu þjóðarinnar. ´

Ég skammast mín ekkert fyrir það viðhorf og er reiðubúinn að verja það hvar sem er, hvenær sem er.

Varðandi það að vita meir um fólkið þá er það nauðsynlegt skipulagningar vegna. Það er nefnilega fólk eins og þú bendir á og hefur þar af leiðandi kröfur og þarfir til að mynda í skóla, félagsþjónustu og öðru.

En þú heldur bara að það þurfi nýja skó.

Atli Jónsson, heimurinn er ekki eins einfaldur og hann var á Hornströndum hér fyrrum.