mánudagur, 19. maí 2008

Kjaftaskúmum svarað

Fjölmiðlaumræða síðustu daga hlýtur að verða rannsóknaefni þegar fram í sækir.

Vænisýkin sem gripið hefur einkum og sér í lagi sumt málsmetandi Samfylkingarfólk er alveg makalaus. Tónninn var sleginn strax á miðvikudag þegar Björk Vilhelmsdóttir Samfylkingarkona sem situr í velferðarráði Reykjavíkurborgar mætti í viðtal í þættinum Ísland í bítið á Bylgjunni og fór mikinn.

Kallaði mig meðal annars því smekklega nafni "kynþáttahatari".

Mér varð hugsað til allra viðvörunarorðanna sem við í Frjálslynda flokknum höfum haft uppi í innflytjendaumræðunni, og síðan allir þeir þættir sem hafa ræst bara á liðnum vetri. Það er kominn tími til að ræða það aðeins, en það bíður þar til í síðari pistli. En almenningur veit að við í Frjálslynda flokknum höfðum aðeins uppi réttmætar athugasemdir varðandi sjúkdómavarnir, eftirlit og fyrirbyggjandi aðgerðir gegn glæpum. Reynslan hefur sannað það með óyggjandi hætti. Því miður.

Annað sem kominn er tími til:

Það er að þessu fólki sem hingað til hefur komist upp með að kæfa eðlilega umræðu um innflytjendamál með svívirðingum og upphrópunum um samborgara sína, verði hér eftir svarað fullum hálsi. Málið er nefnilega að þetta fólk er í miklum minnihluta meðal þjóðarinnar. En það fer mikinn víða - oftast undir nafnleynd. Ofbeldið sem það sýnir í allri umræðu með skoðanakúgun og stanslausri vöktun er gersamlega óþolandi. Það er kominn tími til að þessu linni.

Þetta er okkar land - okkar þjóðfélag. Við, almennir borgarar, höfum fullan og stjórnarskrárvarinn rétt til að tjá okkur um það hvernig það þróast inn í framtíðina. Við eigum ekki að þurfa að óttast að mannorð okkar sé dregið í svaðið af kjaftaskúmum Samfylkingar í hvert sinn sem við segjum hug okkar og skoðanir.

-----------------------------

Í sama Bylgjuþætti á miðvikudagsmorgun kom Akurnesingurinn Guðbjartur Hannesson. Síðan fyrir ári, alþingismaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi og formaður félagsmálanefndar Alþingis sem fór mikinn. Guðbjartur hefur helst unnið sér það til frægðar að lofa kjósendum sínum frítt í Hvalfjarðargöngin ef þeir kysu hann á þing.

Smellið hér til að sjá hvers vegna Skagamenn vita hvernig farið hefur með það....

En Guðbjartur sagði margt sem var mjög áhugavert, meðal annars að hann sæi ekkert athugavert við það að velferðarkerfi Akranesbæjar yrði opnað upp á gátt fyrir hverja sem er, og að staðan í skólum Akraness væri svo frábær að ekkert mál væri að varpa fleiri verkefnum á þeirra herðar.

Þetta viðtal við Guðbjart verður varðveitt til betri tíma kjósendum hans til nánari glöggvunar og upplýsinga í aðdraganda næstu Alþingiskosninga. Það var mjög áhugavert að hlusta á hvernig hann er reiðubúinn að forgangsraða fyrir umbjóðendur sína á Akranesi þegar skóla- og velferðarmál eru annars vegar.

Sjálfur formaður félagsmálanefndar Alþingis....

-------------------------------

Annars er boðaður aukafundur númer tvö í bæjarstjórn Akraness klukkan 17:00 í dag. Þá á að gera aðra tilraun til að kjósa fólk í nefndir. Og síðan er liður númer fjögur: Móttaka flóttamanna.

Undirbúningslaust á þar væntanlega að samþykkja ferli sem á að enda með því að 60 flóttamenn frá Írak setjast að á Akranesi.

Sumargjöf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks til Skagamanna.

Umdeilt - mjög umdeilt.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mikið rosalega er þetta orðið þreytt hjá þér, nafni. Þú kommenterar á allar bloggsíður sem koma eitthvað inn á þetta flóttamannamál og Akranes, og það er alltaf það sama frá þér. Ég held að blogglesendur séu hættir að nenna að lesa tugguna frá þér eða hlusta á þig. Þú ert búinn að stimpla þig sem andstæðing þess að flóttamenn komi hingað og þar við situr, sama hvað þú hamast í "röksemdafærslum" þínum. Ef þú gefur áfram kost á þér á framboðslistum verður þú talinn fulltrúi þeirra sem haldnir eru kynþáttafordómum og útlendingaandúð. Viljir þú ná þessum stimpli af þér verður þú að gera eitthvað annað en að hamast svona áfram í þessu máli. Fólki finnst það fáránlegt að Akranes ráði ekki við verkefni eins og þetta og lítur því á andóf þitt sem andstöðu við móttöku á flóttamönnum grundvallað á útlendingaandúð. Þannig er það og verður hvort sem þér líkar betur eða verr.
Kveðja,
Magnús Gíslason

Magnús Þór sagði...

Nei, þetta er ekki þreytt og baráttan er bara rétt að byrja.

Var að koma af bæjarstjórnarfundi þar sem bæjarfulltrúar samþykktu að fara í viðræður við stjórnvöld um móttöku flóttamanna. Virðast ekki fatta að það er búið að ákveða allt fyrir löngu á bak við þá sjálfa. Nema þeir séu að spila blekkingaleik fyrir framan bæjarbúa sem er allt eins líklegt.

Nú er hafin atburðarrás sem á eftir að valda miklum deilum og ófrið. Bæjarstjórnin er að kljúfa samfélagið í herðar niður.

Mér er alveg sama hvað þú eða aðrir segja - ég er að gera rétt með því að berjast gegn þessu.

Nafnlaus sagði...

Þetta er algjört bull í þér Magnús.

Skv. Hagstofunni fjölgaði íbúum á Akranesi úr 5.955 í 6.345 á milli áranna 2006 og 2007, alls um 390 manns á þessu eina ári. Árin á undan fjölgaði um 127 milli 2004 og 2005 og 173 íbúa 2005 til 2006.

Að halda að samfélagið ráði ekki við að nokkrar konur flytji þangað með börnin sín, samtals um 30 manns er auðvitað fráleitur málflutningur og hefur ekkert með hæfni samfélagsins að gera til að taka á móti fólkinu.

Þá er bara eitt eftir sem getur verið ástæðan fyrir þessum málflutningi þínum og það er almennt viðhorf gagnvart því að þessir tilteknu einstaklingar taki upp búsetu á Akranesi því ekki hefur mér sýnst þú hafa mikið á móti annarri fjölgun í bæjarfélaginu.

Nafnlaus sagði...

Kæri Magnús.

Taki maður þig á orðinu, þegar þú segir að móttaka flóttamanna frá Palestínu sé of illa undirbúin, er það þín skoðun að það þurfi að undirbúa þetta betur, og svo bjóða flóttafólkið velkomið til Akraness?

Þú hefur líka haldið því fram að peningunum sem á að verja í móttöku flóttamannana væri betur varið til þess að hjálpa þeim heima hjá sér. (Það er kannski rétt að minna á það að flóttamenn eiga hvergi heima - þess vegna eru þeir flóttamenn og þetta á reyndar alveg sérstaklega við um þessa tilteknu flóttamenn frá Palestínu, sem eiga ekki einu sinni ríkisfang.) En hvað um það. Er það þá þín skoðun að Ísland eigi ekki yfir höfuð að taka á móti flóttamönnum og við eigum frekar að verja fénu í þróunaraðstoð þar sem hver króna myndi nýtast betur og aðstoða fleiri?

Svo heldur þú því fram að á meðan Akurnesingar séu í biðlista eftir félagslegum íbúðum sé ekki rétt að hýsa konur og börn frá Palestínu innan sveitarfélagsins. Er þá ekki líka réttast að hætta við alla þróunaraðstoð á meðan Akurnesingar eru að bíða eftir félagslegum íbúðum? (eða réttara sagt að beina þróunaraðstoð til Akraness?)

Þessar röksemdir þínar ganga ekki alveg upp einar og sér. Það er eins og það vanti eitthvað inní þetta hjá þér. Þér finnst þetta of illa undirbúið og svo væri betra að hjálpa þeim heima hjá sér, og svo á ekki að leggja þessar þungu byrðar á Akranes, á meðan efnahagsástandið er ekki betra og það eru sumir á Akranesi sem hafa það ekki nógu gott. Það er þess vegna sem sumir hafa ásakað þig um útlendingaandúð, því þeim finnst þetta ekki alveg koma heim og saman. Ég vil ekki ásaka þig um slíkt. Slíkar ásakanir eru óþarfar og það er það er rétt hjá þér að þeim er stundum beitt til þess að kæfa umræðu.

Getur það hugsanlega verið tilfellið að móttaka flóttamanna sé vel undirbúin, í ágætri samvinnu ríkis, sveitarfélags og Rauða Krossins (þetta hefur gengið prýðilega í öðrum sveitarfélögum), en að þú sért einfaldlega á móti komu þessara flóttamanna yfirleitt, sama hversu vel eða illa slík móttaka væri undirbúin?

Eða ert þú einfaldlega stjórnmálamaðu sem lítur á komu flóttamannanna sem tækifæri, þar sem þú veist það að það er hægt að ná sér í heilmikla athygli og ca. 10% atkvæða með svona málflutningi (miðað við sum nágrannalanda okkar) og að þetta sé vænlegasta leiðin fyrir þig til þess að komast aftur á þing?

Nafnlaus sagði...

En hamast kommar og vinstrimenn Samfylkingarinnar og eru iðnir við kolann.

Og löngu búnir að gleyma eða vilja ekki muna hvernig þeir höguðu sér gagnvart starfsmönnum Alcan í kosninguni 2007 , þar sem þeir lögðu starfsfólk í einelti með níðskrifum og rasistma gagnvart starfsfólki og telja sig nú hina Guðs útvöldu málsverja frjálshyggjunnar en réðust samt sem áður á Íslenska alþýðu og þóttust vera miklir garpar.

En við starfsfólk munum aldrei gleyma hvernig rasistarnir komu fram við okkur líkt Gyðingarnir muna herförina. .
Kv. Sigurjón Vigfússon

Magnús Þór sagði...

Nei, Broddi trúðu mér. Þetta er ekkert undirbúið. Hefur ekki einu sinni verið rætt af neinu viti. Allur málatilbúnaðurinn er skelfilegur og lyktar af svo vondri stjórnsýslu að ég hélt að svona væri ekki hreinlega ekki hægt nema kannski í Monty Python bíómynd.

Nafnlaus sagði...

En Magnús, svaraðu nú.... vilt þú að tekið verði á móti flóttamönnum ef það er vel undurbúið?