föstudagur, 9. maí 2008

Gallhörð ESB andstaða í Noregi

Andstaða norsku þjóðarinnar við að Noregur gangi í Evrópusambandið er alltaf að aukast - og hún eykst hratt.

Samt ekki jafnhratt og fylgishrun Samfylkingarinnar er niður á við hér á landi - enda erfitt að toppa slíkt afrek.

Nú segja mælingar í skoðanakönnunum að 60 prósent Norðmanna segi NEI við ESB aðild. Hefur aldrei mælst meiri.

Spurt var: "Hvað myndir þú kjósa ef það yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB aðild á morgun?"

Og Norðmenn sjá ekki baun í bala eftir því að hafa sturtað aðildarsamningunum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu öðru sinni árið 1994. Síðan þá hefur andstaðan bara aukist.

Meirihlutinn segir nei í öllum flokkum nema systurflokki Sjálfstæðisflokksinsm, íhaldsflokknum Hægri. Í þeim flokki segja 70% JÁ. Meira að segja í systurflokki Samfylkingarinnar, Arbeiderpartiet, er meirihlutinn á móti.

Og unga fólkið í Noregi er mest andvígt ESB aðild - takið eftir því.

Þið getið lesið meir um þetta í þessari frétt Aftenposten.

Norðmenn eru engir kjánar - það hef ég alltaf vitað og sagt.

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Danir, Bretar, Þjóðverjar, Ítalir, Eistar, Lettar, Belgar....

eru engir bjánar heldur..

Nafnlaus sagði...

Auðvelt að vera á móti Evrópusambandinu í Noregi þar sem olíusjóðurinn þeirra er 1.939 trilljón (trilljón er 1000000000000, eða 10 í tólfta veldi).

Þjóð sem getur gert þetta:

Norway cancels foreign debts
Norway is cancelling the debts of seven countries that borrowed heavily during a Norwegian ship export campaign in the 1970s. All told, it amounts to two-thirds of the foreign debt owed Norway.
The government had agreed to cancel debts owed by Ecuador, Egypt, Jamaica, Peru and Sierra Leone. The money owed Norway by these countries amounts to NOK 520 million (about USD 80 million).

Norway also will forgive debt owed by Burma and Sudan, (NOK 1.58 billion and NOK 770 million respectively) as soon as these countries qualify for international operations for debt relief.

The debts were incurred between 1976 and 1980, when a ship export campaign also served to assist Norwegian shipyards.

Erik Solheim, the Norwegian government minister in charge of foreign aid, called the program a mistake, and said the debt relief was aimed at erasing a "little honourable" portion of Norwegian development history.

...hefur efni á því að standa utan allra bandalaga.

Íslandi er betur borgið í ESB.

Magnús Þór sagði...

Ó sei, sei, nei. Ég var heldur ekki að kalla þessar þjóðir bjána. Er bara að segja að Norðmenn eru engir kjánar. Það þarf ekki að þýða að þá hljóti allir aðrir sem ekki eru nefndir, að vera kjánar.

Nafnlaus sagði...

Hvernig væri að sækja um að gerast hérað í Noregi?

Ætli Norðmenn vilji taka við okkur.

Magnús, ef íslendingar breyta ekki um mynt hérna á íslandi innan 10 ára þá snýst þetta við.....
íslendingar flýja til Noregs aftur.

En kannski er það draumur Magnúsar? Fækka aðeins á skerinu... og úpps já .. stoppa innflytjenda strauminn. Ég held ég sé farinn að fatta afhverju brosið rennur ekki af Magnúsi Þór þessa dagana. Hvað er betra en sönn íslensk kreppa til að halda okkur í einangrun. Eyríkið Ísland. Sannir íslenskir víkingar. Hér er ekkert pláss fyrir einhverja aumingja sem vilja skríða undir pilsfald ESB. Nei... sannir íslendingar standa keikir í stafni... Reka við af krafti upp í vindinn og bölva lýð sem vill svíkja land og þjóð.

Þig getur farið að hlakka til Magnús, Það fer að bresta á landflótti.. krónan aldrei verið jafnveik. Verðbólgan í tveggja stafa tölu og stýrivextir yfir 15%. Ó en sú sæla að eiga heima á Fróni.

egillm sagði...

Það að einhver þjóð sé á móti því í skoðanakönnunum að ganga í ESB segir voða lítið um það hvort ESB sé gott eða slæmt. Það endurspeglar bara skoðanir hennar.

Nafnlaus sagði...

Norðmenn fara í Evrópusambandið þegar þeir verða orðnir einir eftir í EES.

Nafnlaus sagði...

... sem sé málið er að Normenn eru engir bjánar vegna þess að þeir eru á móti Evrópusambandinu en hinir sem eru með eða í Evrópusambandinu er ekki heldur bjánar... þetta grunaði mig að þarna eru allir jafnir og Normenn í engu sérstakir eða sérumverðir.

Þá er bara að vera að samferða, Dönum, Svíum, Finnum, Eistum, Lettur, Liháum og hefja viðræður strax. Enda er þjóðin á því atvinnurekendur á því, ASI á því, SI á því ...

en það er alltaf gaman að fylgjast með skoðunum "ekki - bjána" og það hefur aldrei skaðað neinn - bara bætt.

Nafnlaus sagði...

Norðmenn sögðu NEI árið 1972 og aftur NEI árið 1994 og enn er NEI við aðild að ESB. Á tíma EES hafa norðmenn hinsvegar aðlagast meira og betur að EES en mörg EES-landanna. Árið 1972 var olían ennþá bara draumur og varla orsök þess að norðmenn sögðu NEI. Árið 1994 var olían orðin að veruleika og aftur NEI. Olíusjóðurinn sem nú heitir lífeyrissjóður, er allsengin orsök andstöðu við EES. Orsökin liggur annarstaðar, m.a. í því að afleiðingar aðildar yrðu miklar fyrir bæði fiskveiðar og landbúnað. Noregur er ekki á sama báti og Ísland varðandi fiskveiðar og stóran hluta af landbúnaðinum.
Af ca 4,7 millj. íbúa Noregs búa undir 2 millj, á Oslóarsvæðinu. Dreifbýlið og tengsl hlutfallslega miklu stærri hluta þjóðarinna en á Íslandi við fiskveiðar og landbúnað hefur mikið að segja og þetta kemur fram í skoðanakönnunni.
Og bara til að það sé sagt, þá eru íslensku lífeyrissjóðirnir hlutfalslega stærri en norski lífeyrissjóðurinn, þ.e. betri trygging fyrir lífleyrisgreiðslum.
Það er líka rétt að nefna það að íslenska efnahagskerfið er aðeins skiptimynt samanborið við það norska og með íslensku krónuna er það hálf ótraust til þess að bera það sem íslenskir eru að reyna sig við á alþjóðlegum vettvangi.
Norðmenn hafa valið þá leið að vera utanvið ESB, en samþykkja nánast allt sem kemur frá Brussel nema skerðingu á réttinum til þess að stýra sjálfir fiskveiðum og landbúnaði. Það virkar, ennþá að minnsta kosti.

Nafnlaus sagði...

Enda eiga þeir einar mestu auðlyndir heimsins. Því að deila þeim með löndum sem eiga engar? Íslendingar ættu að spyrja sig þess sama.
Ef við mundum spyrja Íslendinga:
1. Viltu ganga í ESB? (Svar 70% Já)
2. Viltu deila auðlindum okkar með restini af Evrópu? (Svar 70% Nei)

Sama spurningin en bara sett ólíkt upp.

Nafnlaus sagði...

Það verður sífellt veiklulegri röksemdafærslan fyrir veru okkar utan ESB. Flokka kannanir í Noregi með áhugaverð ummælum Sturlu um sjálfstæði og Jón Sig, í besta falli brosleg sem rök en óbrúkleg.

En það er líka verið að skrapa botninn í rökunum, hin hafa verið vegin og dæmd.

Nafnlaus sagði...

Når vi regner med alle spurte, vil 52 prosent svare nei, 35 prosent ja, mens 13 prosent er usikre. Selv om alle de usikre skulle ende opp på ja-siden, er det flertall mot medlemskap.

Á íslensku þýðir þetta eftirfarandi: 52% eru á móti, 35% með, 13% óákveðnir. Þetta eru svör þeirra sem voru spurir. Vissulega geta þessi 13% dreifst á báðar hliðar, en það verður að taka með í reikninginn að sérstaða Norðmanna er mun meiri heldur en Íslendinga. Það er að sjálfsögðu OLíAN. En hvað gerist þegar lindirnar tæmast? Þá verða Norðmenn að fara að nota þá peninga, sem þeir tíma ekki í dag, skólar og heilsugæsla eru t.d. að mér skiilst víða í ólestir, t.d. húsnæði. Og hvaða auðlindir hafa Norðmenn eftir olíuna? Ferðamál, jú, en Noregur er eitt dýrasta land í heimi (ásamt Íslandi. Tel því að bæði Ísland og Noregur ættu að sækja um aðild og vera með í þeirri þróun sem á sér stað í Evrópu, en ekki vera einhverjar jaðarfyrirbæri, sem hafa afar takmörkuð áhrif á það sem er að gerast í Evrópu o gumheiminum.