föstudagur, 2. maí 2008

Breska Samfylkingin í klessu

Í kvöld hef ég fylgst með fréttum á SKY.

Lokaniðurstöður borga- og sveitarstjórnakosninga á Bretlandseyjum.

Kosningaafhroð Verkamannaflokksins - bresku Samfylkingarinnar - er sögulega skelfilegt.

Bretar eru náttúrulega búnir að gera sér grein fyrir því hvílíkir pólitískir loddarar eru í þessum flokki Gordon Brown, Tony Blair og félaga.

Hið sama er óðum að renna upp fyrir almenningi á Íslandi varðandi Samfylkinguna hér á landi.

Mér hefur lengi litist vel á stjórnmálamanninn sem nú er nýji borgarstjórinn í London.

Boris Johnson.

Hann er kraftmikill og ákveðinn - tekur sjálfan sig passlega hátíðlega.

Maður að mínu skapi.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já frábært!

Geturðu þá sagt mér hvort Fáránlegi flokkurinn er til hægri eða vinstri?

Magnús Þór sagði...

Ef þú átt við Frjálslynda flokkinn þá ráðlegg ég þér að lesa málefnahandbók flokksins og komast að því sjálfur. Hún er á heimasíðunni www.xf.is

Frjálslyndi flokkurinn er málsvari frelsis einstaklinganna til orðs og æðis. Við verjum einkaframtakið en leggjum jafnframt áherslu á að velferðakerfið og grunnstoðir þjóðfélagsins séu í góðu lagi. Áfram má lengi telja.

Að mínu mati getum við sagt miðsækinn hægriflokkur. Sumir myndu segja að flokkurinn væri á miðjunni. Aðrir hafa kallað Frjálslynda flokkinn vinstriflokk. Við höfum haft það fyrir vinnureglu til dæmis í þinginu, að styðja öll góð og skynsamleg mál hvort sem þau koma frá vinstra eða hægra megin frá í íslenska flokkakerfinu.

Segja má að Frjálslyndi flokkurinn aðhyllist hreinskilni og heiðarlega heilbrigða skynsemi, enda hefur iðulega komið í ljós að við höfum haft rétt fyrir okkur í ýmsum málum.

Nafnlaus sagði...

Mér hefur helst sýnst að Boris Johnson sé rasisti og populisti. Slíkir menn eru ekki að mínu skapi. Hér gefur m.a. að líta nokkur af þeim umdeildu málum sem hann hefur verið viðriðinn.

Nafnlaus sagði...

Það síðasta sem maður tengir við Frjálslynda flokkinn er frjálslyndi og heilbrigð skynsemi...

Magnús Þór sagði...

Ég nenni ekki að eltast við þessa orðaleppa "popúlisti og rasisti" frá "pólitískt réttþenkjandi menntaelítu" þessa lands.

Mestu popúlistar og pólitísku hræsnarar Íslands í dag eru þau Ingibjörg Sólrún og Össur Skarphéðinsson og félagar þeirra í Samfylkingu. Þetta fólk sýnir allt annað andlit í dag en það gerði á síðasta kjörtímabili.

Og - Frjálslyndi flokkurinn stendur fyrir frjálslyndi og heilbrigða skynsemi.

Nafnlaus sagði...

Frjálslyndi flokkurinn hefur verið sá flokkur sem hvað mest hefur barist fyrir almennu réttlæti hvort sem sú réttlætisbarátta hefur verið á hægri línunni eða vinstri línunni.