fimmtudagur, 15. maí 2008

Bilaður vindhani við Vesturgötu

Ráðherrann sem í dag situr í minnsta og aumkunarverðasta ráðherrastól norðan Alpafjalla fer mikinn á bloggi sínu í kvöld.

Össur Skarphéðinsson ímyndar sér að ég hafi orðið fyrir miklu pólitísku höggi og sé nánast útlægur ger á landi hinna fögru ísa.

Þetta er kolrangt stöðumat hjá fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar.

Aldrei hef ég upplifað þvílíkan meðbyr með mínum málstað og nú.

Þegar fólk stoppar mig ítrekað á götu til að taka í hönd manns og segja nokkur hrósyrði, þegar menn og konur koma til mín í röðum og klappa mér á bakið fyrir frammistöðu síðustu daga þá er eitthvað mikið í gerjun.

Þegar síminn stoppar ekki daglangt, þegar tölvupóstar berast og þegar konan mín sem fer víða um bæinn starfa sinna vegna, færir mér ótal kveðjur frá bæjarbúum sem hún hefur hitt á förnum vegi daglangt þegar ég kem heim á kvöldin, - þá hef ég næga vissu fyrir því að ég hef gert skyldu mína sem stjórnmálamaður sem starfar fyrir almenning í þessu landi.

Ég hef breytt rétt.

Fólk er einfaldlega búið að fá yfir sig nóg af skoðanakúgun og yfirgangi Össurar og hans nóta þegar útlendingamálin eru annars vegar.

Össur og hans pólitísku trúfélagar eru búin að hrópa "rasistar, rasistar, kynþáttahatarar, kynþáttahatar" svo oft að saklausum borgurum sem spyrja eðlilegra spurninga, - að trúverðugleikinn er fokinn allan veg veraldar.

Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi, sem Össur hefur svo stór orð um, hefur látið Gísla S. Einarsson og Karen Jónsdóttur draga sig út í mesta pólitíska slys sem um getur í manna minnum hér á Skaganum.

Minn pólitíski radar segir mér það sem ég vissi fyrir, að fólk flest hér á Skaganum er algerlega á öndverðum meiði við bæjarstjórnarfulltrúana sem sitja nú, þegar kemur að gerræðislegri ákvörðun þeirra um móttöku á stórum hópi flóttafólks frá Írak.

Vindhaninn Össur mælir ekki réttar pólitískar vindáttir meðal fólksins í landinu.

Enda engin furða.

Hann er í Samfylkingunni.

10 ummæli:

Unknown sagði...

Hann er ekki bara Samf.maður heldur hefur hann persónulegra hagsmuna að gæta.

Nafnlaus sagði...

Þetta er alveg rétt hjá þér, þessi rasista tugga er orðin gömul. Fólk eins og Össur þarf að átta sig á því að þeir sem borga launin hans (því miður) hafa fullann rétt á því að hafa skoðun á svona málum án þess að vera kallaðir rasistar. Það er allt í lagi að hjálpa útlendingum, en það virðist aldrei vera hægt að hjálpa íslendingum. Það lítur kannski ekki eins vel út á CV'inu.

Nafnlaus sagði...

Þetta er alveg rétt hjá þér, þessi rasista tugga er orðin gömul. Fólk eins og Össur þarf að átta sig á því að þeir sem borga launin hans (því miður) hafa fullann rétt á því að hafa skoðun á svona málum án þess að vera kallaðir rasistar. Það er allt í lagi að hjálpa útlendingum, en það virðist aldrei vera hægt að hjálpa íslendingum. Það lítur kannski ekki eins vel út á CV'inu.

Nafnlaus sagði...

Hahahaha hvernig væri að hætta þessum grát Magnús...

Nafnlaus sagði...

Magnús ég vill gjarnan fá að heyra álit þitt á útlendingastefnu danska Þjóðarfloksinnss (Dansk Folkeparti) og annara sambærilegra flokka í skandinavíu

Nafnlaus sagði...

Í fyrsta lagi þá skil ég ekki þá pælingu að nærsamfélagið á Akranesi sé verr í stakk búið að taka á móti og hjálpa þessu fólki en tjaldbúðir í Írak, ber okkur ekki skylda sem þjóð meðal þjóða að hjálpa öðrum og þó það kosti okkur tímabundin óþægindi ? Í öðru lagi þá langar mig að spyrja hvort satt sé að þú hafir hagað þér eins og óþægur krakki á fundi Rauða krossins sem haldinn var til að kynna þetta mál ?

Magnús Þór sagði...

1. Ég er búinn að fara yfir þetta allt, m. a. í greinargerð minni sem hægt er að lesa á vef Skessuhorns (www.skessuhorn.is)

2. Nei, ég hagaði mér ekki eins og óþægur krakki.

Það eru hins vegar takmörk fyrir því hve mikinn áhuga maður á sýna þegar félagsmálaráðuneheytið mætir upp á Akranesi í botnlausum fíflagangi biðjandi bæjarfélagið um að taka við 60 flóttamönnum getandi ekki einu sinni sagt okkur hvaðan fólkið sé, hvernig hópurinn sem samsettur með tilliti til kynjaskiptingar, aldur og svo framvegis.

Ég hef ekki farið dult með andúð mína á þessum makalausu vinnubrögðum sem og öðru varðandi verklagið kringum þetta allt saman.

Þetta flóttamannaverkefni Samfylkingarinnar er glórulaust rugl.

Nafnlaus sagði...

Gott og vel, ég er búinn að lesa greinargerðina þína nokkrum sinnum en ég fæ ekki svar við spurningunni: Gefum okkur það að fólkið væri að fara í verst undirbúna bæjarfélag á Íslandi, væri það ekki samt töluvert meiri hjálp fyrir fólkið en að vera í tjaldbúðum í Írak ? Það er allskonar fólk að flytja á milli bæjarfélaga á Íslandi og þótt sumt af því sé ekki búið að eyða meginpart ævinar á flótta undan ofsóknum og stríðsrekstri þá er það síst aðsópsminna á þörf á félagslegum úrræðum og aðstoð, hvaða máli skiptir hvers lenskir viðkomandi eru ef við getum sannanlega bætt líðan þeirra ? Ég er nokkuð viss um að náungakærleikur og öruggt umhverfi versus Að kunna ekki tungumálið og hafa litla menntun hlýtur að eiga að sigra meðal siðmenntaðra þjóða.

Með annað atriðið, það eru til verkefnastjórar og vel menntað fólk um allt land sem getur hjálpað til við að skipuleggja þessa hluti, það er fyrirsláttur að segjast ekki hafa allar upplýsingar, þá planaru fyrir verstu mögulegu aðstæður og ef ástandið á fólkinu o.s.f.v er betra en búist var við og gerð áætlun fyrir, þá er það bara besta mál. Við sem stoltir Íslendingar getum ekki falið okkur á bakvið það að vera ekki undirbúinn, stundum eru allra bestu augnablikin í lífinu óundirbúinn og menn rísa uppundir pressu og væntingum.

Ég vildi bara óska að staðfastur og vel gefinn maður eins og þú gæfir þig á vald hins góða og rétta, þá værir þú yfirburða maður í íslenskum stjórnmálum, sem þú ert ekki meðan þú talar fyrir málstað þröngsýna einangrunarsinna.

Nafnlaus sagði...

Hvaða máli skiptir það þig hvaðan flóttafólkið er? Hefði Akranesbær verið eitthvað betur í stakk búinn til að taka við fólki frá öðru landi?

Eða var aðstöðuleysið bara fyrirsláttur?

Nafnlaus sagði...

Nafnlaus: þú talar um "tímabundin óþægindi". Það eru ekki tímabundin óþægindi að taka við flóttafólki, það er stór ákvörðun sem þarf að lifa með til frambúðar og standa vel að í alla staði ef vel á að takast. Það er ekki léttvæg ákvörðun sem hægt er að hætta við.

Ég vil bara bæta við að ég er sammála að það er að verða óþolandi að mega ekki tjá sig um útlendinga- og innflytjendamál á Íslandi án þess að vera stimplaður rasisti. Þetta fer að nálgast ritskoðun og höft á málfrelsi. Það er ekki bara tóm sæla að láta útlendinga flæða inn í þetta litla land, þeim fylgja líka vandamál og það verður að mega ræða þau.