laugardagur, 9. ágúst 2008

Er ESB í stríði við Rússland?

Því miður gefa fréttir frá Kákasus í dag ekki tilefni til mikillar bjartsýni.

Haldi þessi þróun áfram þá er ljóst að við stöndum frammi fyrir mjög alvarlegu stríðsástandi sem getur haft hrikalegar afleiðingar.

Eitt er það sem truflar mig mjög. Það er sú staðreynd að forseti Georgíu hefur ítrekað leyft sér alveg síðan átök hófust í gær, að mæta í bein alþjóðleg sjónvarpsviðtöl. Fyrir aftan hann eru fánar Georgíu og Evrópusambandsins. Sjá ljósmynd hér fyrir ofan.

Af hverju Evrópusambandsins?

Georgía er ekki í ESB.

Undarlegt er að enginn fréttamaður skuli spyrja hann hvað fáni ESB sé að gera þarna? Að minnsta kosti hef ég ekki séð neina skýringu á því.

Mikhail Saakasjvili forseti Georgíu kallar eftir hjálp frá Vesturlöndum og hamrar á því að Rússar hafi nú komið af stað stríði í Evrópu. Hann er að hluta til menntaður í Bandaríkjunum, og hefur barist fyrir því að Georgía gengi í ESB og NATO. Georgía hefur staðið þétt með Bandaríkjunum í Íraksstríðinu. Talað er um að Bandaríkjamenn hafi láti Georgíu hafa vopn og að fleiri hundruð bandarískir "hernaðarráðgjafar" séu í landinu. Þetta allt og fleira, að sjálfsögðu og skiljanlega við litla hrifningu Rússa.

Mér finnst það undarlegt og tilefni til óróa, að engin mótmæli skuli berast frá ESB við því að forseti ríkis sem nú hefur komið af stað stórhættulegu stríði við Rússa, skuli nota fána sambandsins í þessu sambandi. Auðvitað táknar það ekki að ESB eigi hér nokkurn hlut að málum, en það er samt eitthvað við þetta allt sem vekur óhug.

Fyrstu viðbrögð sem ég hef séð koma frá forystumanni í ESB landi eru frá Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Dana (frammámanns í ESB og hugsanlegs kandídats í "forsetaembætti" sambandsins). Þetta er í Berlingske Tidende. Þar skammar Rasmussen Rússa fyrir að hafa ráðist inn í Georgíu. En segir ekki orð um það að forseti Georgíu skuli misnota fána Evrópusambandsins í vægast sagt annarlegum og stórhættulegum tilgangi.

Síðan sé ég nú á CNN að ESB löndin Pólland, Eistland, Lettland og Litháen (fyrrum undir væng Sovétríkjanna) voru nú síðdegis að senda frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem þess var m. a. krafist að ESB blandi sér í málin og bregðist við "heimsvaldastefnu Rússlands" í Austur Evrópu.

Rússar hafa tekið eftir þessu með fánann. Hér fyrir neðan er langt myndskeið frá rússneskri stjónvarpsstöð sem sýnir fyrsta sólarhring styrjaldarinnar. Á tímapunktinum 07:24 gefur Sergey Lavrov utanríkisráðherra Rússlands yfirlýsingu. Hann fer stuttlega yfir ástandið og lýsir neyð sem Rússar hafi orðið að bregðast við. Svo segir hann:

"Against this background we have been watching the Georgian president on TV, affirming that he would stay the course and he is doing this with not only Georgian flag behind him but also the flag of the EUROPEAN UNION. I believe this does not require any comments".

Hvað er Lavrov að gefa í skyn?

6 ummæli:

Friðrik Jónsson sagði...

Fáni Evrópusambandsins var fyrst - og er enn - fáni Evrópuráðsins, þar sem bæði Georgía og Ísland eru aðildarþjóðir. Sjá t.d. heimasíðu Evrópuráðsins: http://www.coe.int/T/E/Com/About_Coe/emblems/emblemes.aspt

Notkun Georgíu á Evrópufánanum er því ekkert óeðlileg.

Magnús Þór sagði...

Rússneski utanríkisráðherrann er ekki sammála.

Það er meira þarna á bak við en að Georgía sé í Evrópuráðinu þó kannski megi skýla sér á bak við það.

Eru til að mynda einhver fordæmi þess að Ísland ætti að flagga fána Evrópuráðsins? Sæuð þið forseta Íslands eða forsætisráðherra mæta ítrekað í viðtöl á ögurstundu með þennan fána á bak við sig?

Forseti Georgíu er að misnota fánann í mjög vafasömum áróðurstilgangi og augljóslega að reyna að draga Vesturlönd inn í þennan darraðadans. Það er auðheyrt þegar hann talar og undirstrikað enn frekar þegar fáninn er alltaf fyrir aftan hann.

Friðrik Jónsson sagði...

Án efa er meira á bakvið notkun Georgíu á Evrópufánanum. Táknnotkun - eða symbolism - fær aukið vægi á átakatímum.

Nafnlaus sagði...

Georgíumenn hafa um þó nokkurn tíma notað Evrópufánann óspart.

Einhversstaðar sá ég mynd af fánaborg fyrir framan eitthvað stórt hús í Georgíu (hugsanlega þinghús eða ráðuneyti) þar sem georgíska fánanum og Evrópufánanum var raðað til skiptis.

Natófáninn er einnig nokkuð vinsæll.

Magnús Þór sagði...

Nákvæmlega. Það er þetta sem ég er að reyna að benda á. Hvað vakir fyrir forseta Georgíu?

Fyrr í dag spurði ég hvort maðurinn væri snarvitlaus? Átta mig ekki alveg á honum. Hann er að spila ansi djarft og þá er vægt til orða tekið.

Nafnlaus sagði...

Magnús Þór: það er nokkuð til í þessu hjá þér með þennan forseta, það er eitthvað bogið við hann. Sjá hvort ég geti ekki skrapað saman smá pistil um þennan mann.