föstudagur, 15. ágúst 2008

Ekki byrjar það vel

Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins segir í viðtali við sjónvarpsfréttir RUV nú í kvöld, að Ólafi F. Magnússyni hafi verið stolið úr Tjarnarkvartettinum á sínum tíma.

Hann er þá að segja að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavíkurborg séu þjófar og mannræningjar.

Öhömm......

3 ummæli:

Friðrik Jónsson sagði...

Mega ekki þeir flokkar sem eftir sátu úr tjarnarkvartettinum vera fegnir að sá stuldur hafi heppnast? Í ljósi reynslunnar, hefði tjarnarkvartetinum vegnað nokkuð betur en Sjálfstæðisflokknum í samstarfi við Ólaf?

Magnús Þór sagði...

Sennilega ekki. Það er ekki hægt að eiga samstarf við Ólaf F. Magnússon í pólitík. Slíkt er gersamlega fullreynt.

En það eru ýmsir fletir í öllu þessu máli sem enn eru ósagðir og hafa ekki komið fram. Miðað við það sem ég veit þá verð ég að segja að Sjálfstæðisflokkurinn kemur mjög veikur út úr þessu öllu saman. Það er eitthvað mikið að á þeim bænum - miklu meira en almenningur fær að sjá. Íhaldið flýtur ótrúlega á því að fjölmiðlar í þessu landi eru því mjög leiðitamir og að hluta undir stjórn þess. En það er smám saman að fjúka ofan af þeim. Ég spái Sjálfstæðisflokknum geysilegu afhroði um land allt í næstu sveitarstjórnar og alþingiskosningum.

Nafnlaus sagði...

Lengi skal manninn reyna ;-p