mánudagur, 3. mars 2008

Ísland á að draga Noreg inn í ESB


Það er augljóst að nú er uppi mikill áróður fyrir því að framtíðarfrelsun íslensku þjóðarinnar felist í því að ganga í Evrópusambandið.

Samfylkingin er sest í ríkisstjórn með veikgeðja Sjálfstæðisflokki. Við sjáum að Samfylkingin lætur ekkert tækifæri ónotað til að reka áróður sinn fyrir því að Ísland gangist Brussel á hönd. Það er smám saman verið að tomma þjóðinni í þessa átt, þó ríkisstjórnarsáttmálinn kveði á um að ekki verði sótt um ESB aðild á kjörtímabilinu.

Geir H. Haarde reynir að ítreka þetta á opinberum vettvangi úti í Evrópu og maður heyrir hæðnishlátrasköllin glymja úr herbúðum Samfylkingar í hvert sinn sem hann tjáir sig opinberlega. Einn af húskörlum Ingibjargar Sólrúnar sem jafnframt er varaformaður utanríkismálanefndar þingsins hleypur strax í vinsælan spjallþátt og ítrekar draum flokks síns um að færa Ísland undir Evrópufánann.

Samfylkingin ber enga virðingu fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins.

Frá ESB berast reglulega þau tíðindi að Ísland sé hjartanlega velkomið í bandalagið. Ég held að þetta snúist ekki bara um Ísland. Suður í Brussel er þeim nokkuð slétt sama um þessa eyju hér norður í Ballarhafi sem telur bara 300.000 manns og stendur veikt efnahagslega séð. Í Brussel eru menn að hugsa um Noreg. Það er miklu fjölmennara land með geysisterkan efnahag. Háþróað þjóðfélag með góðum mannauð sem býr yfir miklum landkostum og náttúrauðlindum. Það er bara einn hængur á. Skoðanakannanir sýna að meirihluti Norðmanna er andvígur aðild að ESB.

Norska þjóðin segir NEI!

Þá er að finna leiðir til að breyta þessu. Það má gera með því að lokka Ísland inn í ESB á undan Noregi. Þá væru Norðmenn eina Norðurlandaþjóðin sem enn yrði fyrir utan. Í Brussel vona menn að við slíkar aðstæður myndi afstaða Norðmanna breytast úr meirihluta NEI í meirihluta JÁ.

Við sjáum þessa afstöðu skýrt í þessu viðtali sænska útvarpsins við Sven-Olof Petersson sendiherra Svíþjóðar hjá ESB. Hann segir það hreint út að hann telji að aðild Íslands að ESB muni leiða til þess að Noregur dragist inn líka.

"Norskt EU-motstånd kan vändas av Island"

Sænski sendiherrann saknar þess að hafa ekki liðsinni Norðmanna innan ESB. Hann minnist ekki á að Ísland geti veitt neitt fulltingi innan sambandsins.

Í þessu samhengi eru Íslendingar ekkert annað en nytsamir sakleysingjar.

Það á að nota okkur til að góma Norðmennina.

----------

(PS: Myndina sem fylgir fann ég áðan á síðu þeirri á Moggablogginu sem Egill Helgason benti á fyrr í dag. Vonandi sakar ekki að ég hafi fengið hana lánaða).

1 ummæli:

egillm sagði...

Nú er það vitað að Samfylkingin er fylgjandi inngöngu í ESB. Hvernig er það lítilsvirðing við Sjálfstæðisflokkinn að þeir tali um Evrópusambandið og vilja þeirra til að fara í ESB þó um það kveði ekki í sáttmála? Eiga þeir að vera eins og Framsókn var í ríkisstjórn síðustu 12 árin? Sumsé hafa engar skoðanir.

Og annað - finnst þér að sáttmáli geti ekki breyst ef forsendur hans breytast hugsanlega?