fimmtudagur, 6. mars 2008

Þórður Kakali og Evrópusambandið


Áfram halda hersveitir íslenskra ESB sinna í leiðangri sínum til að koma íslensku þjóðinni undir bláfánann í Brussel. Enda hafa þeir aldrei haft betri skilyrði til starfa sinna en nú, þegar helsti fylgisflokkur fullveldisafsalsins er kominn í ríkisstjórn.

Þjóðin virðist stöðugt veikjast fyrir áróðrinum. Kannski ekki að undra. Það er að harðna á dalnum og þá verður fólk móttækilegra. Við höfum klúðrað okkar dýrmætustu náttúruauðlind sem eru fiskistofnarnir. Útrásin svokallaða var ekkert annað en froða. Það stefnir óðfluga í djúpa efnahagskreppu. Sterk öfl meðal þjóðarinnar liggja hundflöt fyrir svokallaðri alþjóðavæðingu. Vilja helst selja útlenskum gróðaöflum bæði landið og miðin. Litið er gagnrýni laust til valdboðsins frá Brussel. Það er sótt að því sem gerir okkur að þjóð - bæði menningu og tungu. Hér er helst hæðst að þeim sem viðurkenna að þeim þyki vænt um þjóð sína og arfleifð.

Ég var að lesa bókina Þórður Kakali eftir Ásgeir Jakobsson. Ákaflega fín bók þar sem Ásgeir fer yfir sögu eins merkasta Íslendings sem uppi var á öld Sturlunga - og að mínu mati eins merkilegasta Íslendings fyrr og síðar. Ásgeir leyfir sér að leggja út af sögunni, hann fer á flug og ritar sínar eigin hugleiðingar. Í lok bókarinnar er kafli með texta Ásgeirs "Grunnurinn var aldrei lagður og því féll húsið". Þar fjallar Ásgeir um mat sitt á ástæðunum fyrir því að við misstum fullveldi okkar undir Noregskonung árið 1262. Það kostaði margra alda ófrelsi. Mig langar að vitna í hluta af þessu - mér finnst þetta á vissan hátt eiga skírskotun til samtímans:

"Íslenska þjóðin bjó ekki lengur við skóga og kafgresi landnámsaldar, heldur kólnandi tíðarfar og ofbeitt land, nagað ofan í rót af sauðfé og hrossum. Sauðfjárbúskapur þjóðarinnar var geysilega mikill, þar sem sauðfjárafurðir voru eini gjaldmiðillinn til kaupa á öllum varningi, og ekki síður var hrossabúskapur mikill, það þurfti ógrynni hrossa til hinna miklu liðflutninga, sem fylgdu öldinni. Harðæri voru farin að þjaka þjóðina með falli fólks og búfénaðar og þegar framleiðsla þjóðarinnar minnkaði, og hún gerðist fátækari að kaupeyri, minnkaði áhugi hinna erlendu kaupmanna fyrir siglingum til landsins, og þær voru farnar að strjálast, og því brá orðið fyrir ekki sjaldan í annálum: "Ekki kom skip af Noregi það sumar".


xxx


"Þegar nú allt það er tekið saman, sem rakið hefur verið um ástandið á síðari áratugum 13du aldar, hlaut sú spurning að verða áleitin með þjóðinni, hversu miklu hún ætti að kosta til að halda í eigið stjórnkerfi, sem þjóðinni hafði reynst illa, þegar ekki var annað eftir að sjálfstæði þjóðarinnar. Konungur frændþjóðar, sem tengslin höfðu aldrei verið slitin við, og réði fyrir allri verzlun og siglingum, bauðst nú til að friða landið og tryggja árlegar siglingar til þess gegn skattgjaldi og því, að þjóðin játaði hann formlega sem sinn konung. Var þetta ekki álitlegur kostur svo sem málum þjóðarinnar var komið? Urðu ekki bændur að bera þunga skatta í herleiðöngrum aldarinnar? Var ekki meira vit í að greiða skatt þeim, sem gat friðað landið, svo að bændur fengju frið við búsýslu sína og þyrftu ekki að sæta sífelldum herkvaðningum til herfara með stórum hrakningum? Höfðu svo ekki landsmenn búið við þennan kóng yfir sér í nær hálfa öld og reyndar þeirra forfeður við Noregskonunga alla tíð, meira eða minna? Hver kristnaði þjóðina? Hvaðan komu lögin? Höfðu ekki margir Íslendingar svarið þessum konungi eiða sem hirðmenn hans?"


xxx


Fullveldisbaráttan hin síðari er hafin - Ísland þúsund ár!


10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þess vegna þurrkast Frjálslyndir út í næstu kosningum, fólk er búið að fá meira en nóg af bergþursum eins og þér sem vilja halda landinu í gömlum fjötrum afturhalds og fordóma.

Nafnlaus sagði...

Frjálslyndi flokkurinn mun ekki þurrkast út í næstu kosningum. Á næsta ári heldur flokkurinn upp á tíu ára afmæli sitt.

Ég bendi þeim sem treysta sér ekki til að tjá sig undir nafni hér að láta þá frekar ógert að tjá sig hérna.

Nafnlaus sagði...

Þetta er öflugur pistill Magnús og algerlega þarfur.

Frjálslyndi flokkurinn mun ekki þurkast út í næstu kosningum enda þörfin fyrir frjálslyndan þjóðarflokk sífellt að aukast.

Nafnlaus sagði...

Er ekki lærdómurinn af þessu að hinn íslenski landeyrir, sauðfé, varð okkur of dýr gjaldmiðill sem át upp gullfótinn, þ.e. jarðgæðin.
Nú erum við aftur í þeirri stöðu að vera með ónýtan innlendan gjaldmiðil sem ekki dugar í viðskiptum við útlönd og kostar landsmenn og fyrirtæki stórfé á ári hverju.
Er ekki lærdómurinn að til að halda sjálfstæðinu verðum við að vera þjóð meðal þjóða, með sambærilegan gjaldmiðil og samkeppnishæft atvinnulíf og fólk?
Það hefur ekki vantað sjálfstæðið á Kúbu - en flest annað.
Kv. Dofri Hermannsson

Magnús Þór sagði...

Nei Dofri

Við eigum ekki að láta tímabundin vandamál leiða okkur í þá freistni að afsala fullveldi okkar í hendurnar á erlendum öflum. Ég er ekki þeirrar skoðunar að aðild að ESB sé lausn á vandamálum dagsins í dag. Við leysum þau ekki því að ef það yrði farið í aðildarviðræður þá yrði það ekki fyrr en eftir þetta kjörtímabil sem lýkur 2011. Aðildarviðræður eru ekki á stefnuskrá núverandi ríkisstjórnar er það nokkuð?

Viðræður tækju langan tíma, auk þess sem mikill pólitískur prósess færi af stað hér á landi. Það þyrfti að breyta stjórnarskrá, rjúfa þing, boða til nýrra kosninga. Aukinheldur yrðum við að ná auknum stöðugleika í efnahagsmálum til að geta tekið upp Evruna, ekki satt? Umræðan um ESB nú er afvegaleiðandi villuljós því hún leysir ekki aðsteðjandi vanda sem fer að verða ansi mikill - ég skal viðurkenna það.

Nú eigum við frekar að eyða orkunni í það að leita lausna til að finna út hvernig við ætlum að leysa vandamálin sem liggur á að leysa. Ég tala bæði um efnahagsmál, auðlindamál þar með talið fiskistofnana, byggðamál etc.

Það kostar að vera fullvalda þjóð - kannski enn meira þegar við erum fullvalda smáþjóð. Forfeður okkar gerðu sér fulla grein fyrir þessu þegar við rifum okkur frá Dönum en þau voru reiðubúin að takast á við það, bera byrðarnar og færa fórnirnar ef því var að skipta fyrir fullveldið. Ég verð nú að segja að þegar ég lít í kringum mig, þá sé ég ekki að okkur hafi tekist svo illa upp fram til þessa. Viðmiðun við Kúbu er út í hött.

Við Íslendingar höfum svo sem séð það svart áður og ávallt fundið leið út úr vandræðunum. Ég hef fulla trú á því að við búum enn yfir viti til þess þar sem við tökumst á við viðfangsefnin á okkar eigin forsendum, fyrir tilstilli eigin ákvarðanatöku, í okkar eigin landi, með eigið löggjafarvald sem heitir Alþingi.

Nafnlaus sagði...

Dofri: Undarlegt hvernig þú notar innihaldslausar staðhæfingar um Kúbu.

Nú vill svo til að ég dvaldi hjá kúbverskri fjölskyldu árið 2006.

Án þess að ég telji mig sérfræðing í málefnum Kúbu þá er ástandið, í því auðlindalitla landi, betra en í þeim löndum í kring sem hafa óhemju magn af töpuðum náttúruauðlindum.

Kúbverjar hafa lítið sem ekkert en nýtnin á því litla sem þeir hafa gerir það að verkum að þeir hafa besta skóla og heilbrigðiskerfi Suður og Mið-ameríku.

Nafnlaus sagði...

Þá er það algerlega ótrúlegt hvað sumir hér í þjóðfélaginu vinna markvisst gegn sjálfstæðinu.

Mæli með því Dofri að þú lesir þennan pistil hérna:

http://heimssyn.blog.is/blog/heimssyn/entry/452691/

Kell sagði...

úff magnús minn - það vantar ekki dramantíkina! Og uppskrúfað málfar í anda rómantísku sjálfstæðishetjanna, þetta er eiginlega eins og þú sért rangur maður á röngum tíma í vitlausu húsi!

Fullveldið í hættu já - þú vilt þá væntanlega að við segjum upp EES samningnum því samkvæmt þinni skilgreiningu á fullveldi höfum við þegar misst það. Og væntanlega telur þú að þjóðir eins og bretar séu ekki fullvalda lengur þar sem þeir eru í ESB.

Ertu ekki bara að leyta að nýrri ógn sem þú getur notað til atkvæðaveiða nú þegar erlendir verkamenn streyma frá landinu.

Nafnlaus sagði...

Undarlegur málflutningur Hrafnkell... Væri ekki nær að koma með málefnalega umræðu...

Eða hugsanlega er málefnaleg umræða um Evrópumálin ekki góður kostur fyrir þá sem aðhyllast fullveldisafsali til Brussel...

Kell sagði...

Meinarður málefnalega eins og að kalla menn landráðamenn?

Það sem þið virðist ekki skilja er að fullveldið er þegar farið með EES samningnum skv Íslensku stjórnarskránni, hvað viljið þið gera í því, málefnalegt svar óskast.

Einnig er það nokkuð ljóst að ef þið teljið það haldbær rök að Ísland sé megi með engu móti missa sjálfstæði sitt með inngöngu í ESB hljótið þið að dæma öll ríki sem eru í ESB ósjálfstæð.