Nokkrar umræður hafa spunnist á silfurvef Egils Helgasonar hér á Eyjunni vegna frumsýningar á kvikmyndinni FITNA. Ég hef aðeins blandað mér inn í þetta. Birti hér síðasta innlegg mitt fyrir neðan, en sjá má orðræður í heild sinni með því að smella hér.
En hér mitt nýjasta innlegg (með örlitlum breytingum):
-------------------------------
Ástæður styrjalda eru yfirleitt flóknar.
Nú er spurning hvort ekki sjóði upp úr í Evrópu meðal annars vegna framgangs íslam?
Egill afskrifar Wilders sem vitleysing. Morgunblaðið í sínum pólitíska rétttrúnaði kallar hann “hægri öfgamann” í frétt.
Nú veit ég lítið um Wilders þennan. Veitti honum ekki athygli fyrr en ég tók eftir miklum fréttum af FITNA myndinni nú í vetur, víða í evrópskum fjölmiðlum. En ég veit ekki betur en hann sé flokksbróðir Ayaan Hirsi Ali sem mætti í Kiljuna hjá honum Agli í vetur og mér sýndist Egill vera mjög hrifinn af. Ef Wilders er vitleysingur þá býr Hirsi Ali á næsta bæ við hliðina á honum.
Það er að mínu mati ekki rétt að afskrifa mynd Wilders sem einangrað útspil hjá einhverjum “vitleysing”. Bara viðbrögðin ein gegn myndinni gera það að verkum að allt hugsandi fólk hlýtur að staldra við. Af hverju eru viðbrögðin svona ofsafengin gegn þessari mynd sem sýnir í raun ekkert annað en það sem við höfum séð áður? Einhver rétttrúnaðarpésinn skrifar hér undir dulnefni fyrir ofan að margar svona myndir hafi verið gerðar áður. Má vera - ég veit það ekki. En þessi er sérstök, að minnsta kosti í augum þeirra sem fylgjast með og ástæður þess hef ég tilgreint.
Nú hefur íslamistum enn eina ferðina tekist að hefta málfrelsið. Vegna hótana hefur myndin verið fjarlægð af myndbandaveitunni þar sem hún birtist fyrst. Stjórnmálamenn í virtum lýðræðislöndum kringum okkur hafa skjálfað og nötrað á beinunum af hræðslu. Við hvað?
Það fer fram mjög mikil umræða um framgang íslam í Evrópu. Heilu skipsfarmarnir af bókum eru gefnir út sem fjalla um íslam og kristni. Og þær eru lesnar af fólki, því margir hafa af þessu áhyggjur. Fólk sem áður hefur ekki velt þessu mikið fyrir sér (eins og sá sem hér skrifar), er mjög hugsi yfir þessu öllu saman.
Margir halda því fram að íslam sé í stórsókn. Markmiðið sé í raun að brjóta lýðræðisríki Evrópu undir þessi trúarbrögð og það sem þeim fylgir. Þetta er gert með blöndu af innflutningi fólks sem fjölgar sér mjög hratt og miklu hraðar en þeim sem fyrir eru, trúboði, hryðjuverkum, skoðanakúgun og kannski ekki síst með því að beita fyrir sig nytsömum sakleysingjum úr hópi þeirra vestrænu sem fyrir eru í þessum löndum. Íslömsku öflin hafa næga þolinmæði því þau vita að tíminn vinnur með þeim eins og staðan er í dag. Og vinstri öflin í vestrænum ríkjum taka þessu fagnandi - umfaðma hinn íslamska fasisma. Sýna brjálæðingunum “umburðarlyndi og skilning” og úthúða þeim sem dirfast að spyrja spurninga. Reyna jafnvel að setja okkur í flokk með nasistum eins og dæmi hér á Íslandi sanna.
Evrópusambandið er í tómu rugli og nær engan veginn að hamla gegn þessu - löndin innan ESB eru hjálparvana í þessari þróun.
Eitt af fyrstu fórnarlömbunum í íslamsvæðingu Evrópu eru gildi sem við höfum talið sjálfsögð. Við getum talað um málfrelsi og lýðræði, kvenréttindi og önnur almenn mannréttindi. Trúfrelsi og fleira. Og við getum spurt okkur hvort við kærum okkur um þá þróun sem er í gangi?
Er það ásættanlegt að staðan sé þannig í dag til að mynda í Danmörku, að þar sé fjölmennt lögreglulið starfandi alla daga árið um kring í því að vakta múslímana með hlerunum á símum og tölvupóstum, að fylgjast með vefsíðum og öðrum samskiptum, að elta þá um borgir og bæi. Allt vegna undirliggjandi ótta sem nagar samfélagið innan frá og eyðir því að lokum? Þetta er svona í Danmörku - ég hef séð það með eigin augum.
Er Wilders að gera nokkuð annað en að reyna að vekja okkur til umhugsunar? Að vara Evrópu við?
Hann er ekki einn.
------------------
PS. Enn er hægt er að sjá FITNA hér á Eyjunni.
laugardagur, 29. mars 2008
Geert Wilders er ekki einn
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
http://politiken.dk/kultur/article488643.ece
Danir flokka Þessa mynd nýja leiðtogi lífs þíns með versta nasistaáróðri.
Það hlýtur að keppa um titilinn "overstatement of the year" þegar einn pistlahöfundur á Politiken er orðinn "Danir".
Annars dett ég af vagninum við lestur svona greina þegar rétthugsunar"elítan" fer að fjasa um þriðja ríkið og áróðursmyndir þess í tilraunum til að tengja þær við það sem er að gerast í dag.
Svoleiðis málflutningur er svo billegur að ég nenni ekki að taka þátt í slíkum diskúsjónum.
Skrifa ummæli