mánudagur, 25. febrúar 2008

Þjóðaratkvæði um forseta og flugvöll

Örlög Reykjavíkurflugvallar eru endalaust tilefni til umræðna.

Endalausra umræðna...

Framtíð flugvallar í Vatnsmýri er ekkert einkamál Reykvíkinga, heldur varðar staðsetning hans alla íbúa landsins. Fréttir greina frá því að nú liggi fyrir nýjar og miklar tillögur um byggð í Vatnsmýri. Og umræður halda áfram.

En nú er komið nóg af málæði. Mér finnst tími kominn til þess að nú verði tekin endaleg og bindandi ákvörðun um framtíð flugvallarsvæðisins. Það skulum við gera með því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar. Gerum það bara um leið og við göngum til forsetakosninga!

Ég sá Halldór Jónsson varpa þessari hugmynd fram á bloggi sínu um daginn. Hef velt henni aðeins fyrir mér síðan og þykir hún ágæt.

Hér er bara einn hængur á.

Það þarf einhver að fara í framboð gegn Ólafi Ragnari Grímssyni svo við fáum kosningar.

Hver ætlar að bjóða sig fram?

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæll Magnús og velkominn á Eyjuna,

Þetta er ekki góð hugmynd og stenst ekki mikla skoðun.

Það er nefnilega alltaf verið að spyrja rangrar spurningar í þessu máli og búið að gera það síðan R-listinn spurði spurningarinnar á sínum tíma. Það er alltaf verið að spyrja hvort fólk vilji hafa flugvöllinn í Vatnsmýrinni eða ekki. Rétta spurningin er auðvitað HVAR á flugvöllurinn að vera?

Það er mjög auðvelt að segjast vilja fjarlægja hann úr Vatnsmýrinni en það er mjög erfitt að finna honum stað einhvers staðar.

Flugmenn segja mér að Keflavíkurflugvöllur sé út úr myndinni vegna vinds. Stóru farþegaþoturnar þoli þennan vind en litlar innanlandsflugsvélar ráði ekki við hann sem myndi leiða af sér mikla fjölgun þeirra daga þegar flugvöllurinn væri lokaður fyrir innanlandsflugi.

Verið er að rannsaka Hólmsheiði og Löngusker (held ég) m.t.t. veðurfars og niðurstöður úr þeim rannsóknum koma ekki fyrr en eftir 3-5 ár. Fyrr er ekki hægt að taka afstöðu til staðsetningar flugvallarins á þessum stöðum.

Mín skoðun (með fyrirvara um rannsóknirnar) er sú að Hólmsheiðin hljóti að vera út úr myndinni verandi í 120 metra hæð og á næsta hól við helsta vatnsból Reykvíkinga í Gvenndarbrunnum.

Löngusker væri mjög spennandi lausn og þá teldi ég að það ætti hreinlega að flytja Keflavíkurflugvöll til Reykjavíkur og reisa einn innanlandsflugs- og millilandaflugvöll á Faxaflóa rétt við Reykjavík. Það sem gæti haft áhrif þarna er hins vegar vandræði tengd seltu. Það eru hins vegar flugvellir úti á svona uppfyllingum. Mér skilst t.d. að flugvöllurinn í Hong kong sé staðsettur svoleiðis. Rannsaka þarf þó seltumálin til hlýtar.

Síðan er auðvitað spurning hvort það væri heppilegra að hafa flugvöll í kringum Selfoss (ef veðrið er betra þar en í Keflavík) og lest í gegnum Hellisheiði til Reykjavíkur sem kæmist í bæinn á 10 mínútum.

Þjóðaratkvæði í sumar verður að bíða þangað til raunverulegir valkostir eru uppi á borðinu sem hægt er að velja úr. Það hvort fólk vill að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni eða ekki hlýtur að velta á því hvaða aðrir kostir eru í boði.

Magnús Þór sagði...

Takk fyrir það Sigurður.

Ég held að flugvöllurinn færi einfaldlega til Keflavíkur. Allt annað er óraunhæft.

En kosturinn í atkvæðagreiðslu yrði væntanlega: Flugvöllinn burt og til Keflavíkur? Já eða Nei.

Nafnlaus sagði...

Ef það er spurningin þá hljótum við að þurfa að fá veðurfarslegar og flugrekstrarlegar upplýsingar um það hversu mikil áhrif staðsetningin hefði á innanlandsflugið. Fyrr getum við ekki tekið þessa ákvörðun. Ef þetta er allt í lagi frá flugrekstrarlegu sjónarmiði þá er hægt að setja upp lest á milli sem færi á 300 km. hraða og væri því um 10 mínútur í bæinn. Það væri fín lausn - ef hún virkar flugrekstrarlega.

Magnús Þór sagði...

Það hljóta nú að liggja fyrir ítarleg veðurgögn um flugvöllinn á Miðnesheiði. Ef einhvers staðar er fylgst grannt með veðri á Íslandi þá ætti það meðal annars að vera þar á sjálfum millilandaflugvellinum.

En ég hef ekki mikla trú á hraðlest suður með sjó. Tvölföld Reykjanesbraut yrði að duga.

Nafnlaus sagði...

Svo er alltaf spurning með Geldinganes.

Nafnlaus sagði...

Það er allt fullt af smáflugvélum sem hafa notast við Keflavíkurflugvöll um áraraðir. Þannig að það er ekki afsökun að þær flugvélar sem notast er við í innanlandsflugi geti ekki notað þann völl.