Fátt þykir mér skemmtilegra en að komast í lestur góðra ritdeilna.
Nú er ein slík í uppsiglingu. Það eru Vestfirðingar sem takast á og tilefnið er jafn undarlegt og það hljómar. Olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum.
Bókað fjör.
Þetta hófst með því að Flateyringurinn Reynir Traustason ritstjóri DV skrifaði leiðara í blað sitt fyrr í vikunni. Tónninn var sleginn með titlinum "Portkonur Pútíns". Hér eru glefsur:
"Vestfirðingar hafa fram að þessu verið stoltir af náttúru sinni og krafti íbúanna. Þar hafa lifað og starfað mestu sjósóknarar Íslands sem hafa að vísu flestir horfið burt af svæðinu vegna kvótakerfisins sem lagði atvinnuveg þeirra í rúst. Öðrum þræði er því hægt að skilja að þeir séu tilbúnir til þess að selja sálu sína. Slík er örvæntingin að seinasta hálmstráið í huga sumra fyrir vestan er að kalla yfir sig mengandi olíuiðnað í örvæntingarfullri tilraun til að spyrna gegn fólksflóttanum".
"Vestfirðingum er hollast að gera sér grein fyrir því að auðlegð þeirra er fólgin í hrikalegu landslagi og hreinleika. Olíuhreinsistöð mun gera þá að portkonum Pútíns og annarra olíukónga. Því verður vart trúað að heimamenn séu í slíkri kreppu að þeim detti ekkert betra í hug en að kalla yfir sig mengun til að bjarga byggð".
Vér aðdáendur ritdeilna máttum vita að þessi orð Reynis yrðu vart látin liggja óbætt hjá garði. Í dag svaraði ísfirski íhaldsbæjarfulltrúinn Gísli Halldór Halldórsson fullum hálsi á vef Bæjarins Besta undir fyrirsögninni "Vestfirskar olíumellur". Sýnishorn:
"Reynir lýgur því í fávísi upp á Vestfirðinga að þeir séu svo „heillum horfnir að þeir þrá það helst að fá mengandi olíuhreinsistöð inn í einhverja af perlum þessa fegursta svæðis Íslands“ og að þeir velti fyrir sér „hugmyndum á borð við eiturspúandi olíu í áður fögrum firði.“ Hið rétta er að Vestfirðingar munu ekki taka við mengandi olíuhreinsistöð, eiturspúandi olíu. Olíuskilvindan sú mun ekki rísa hér nema tryggt sé að hún verði án mengunar. Okkar vonir standa til að hér geti risið olíuhreinsistöð sem yrði sú umhverfisvænsta í heimi, ekki bara að hún verði án allrar mengunar, hún ætti að menga minna en bensínstöðvar Hafnarfjarðar, heldur að hún losi minna koldíoxíð en dæmi eru um. Hún yrði til fyrirmyndar á heimsvísu um leið og hún yrði grunnur aukinnar þekkingar á Íslandi".
Ritstjórinn með hattinn og ísbjarnarklóna lætur ekki eiga neitt inni hjá sér og svarar á sama vettvangi í dag. Hér er klausa úr pistlinum "Eiturspúandi bæjarfulltrúi":
"Bæjarfulltrúinn, sem ber þunga ábyrgð á erfiðri byggðarstöðu á Vestfjörðum vegna aðgerðaleysis og almenns skorts, hikar ekki við að kalla Vestfirðinga olíumellur í fyrirsögn greinar á bb.is þar sem lagt er út af leiðaranum Portkonur Pútíns. Boðskapur þess leiðara er ekki sá að Vestfirðingar séu orðnir portkonur, heldur að þeir verði portkonur með því að setja upp olíuhreinsistöð. Rakalaus þvættingur Gísla um ,,flótta“ viðkomandi frá Vestfjörðum ber vott um heimótta hans. Þótt fólk flytji á milli landssvæða þá þýðir það ekki flótta heldur val. Þeir sem eftir sitja eru hvorki betri né verri en þeir sem fóru. Reyndar er fjárhagsstaðan þannig í Ísafjarðarbæ undir núverandi stjórn að það hlýtur að vera hverjum brottfluttum íbúa fagnaðarefni að hafa farið í tíma".
Og nú bíður maður spenntur eftir því að Reyni verði svarað....
Sjálfur hef ég spurt í liðinni viku, hvaða olíu menn ætli yfir höfuð að vinna í hreinsunarstöðinni á Vestfjörðum? - en ekki séð nein svör.
Raunar finnst mér ein besta ábending vikunnar í þessu olíuhreinsunarmáli hafa komið frá Kristni H. Gunnarssyni þingflokksformanni Frjálslynda flokksins.
Það má lesa með því að smella hér.
Er þessi hugmynd að olíuhreinsunarstöð ekki bara villuljós í umræðunni - ætluð til þess að draga athyglina frá raunverulegum vanda og lausnum á honum?

Engin ummæli:
Skrifa ummæli