þriðjudagur, 26. febrúar 2008

Hvaða olíu á að hreinsa?

Umræður um hugsanlega olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum hafa verið nokkuð háværar á síðustu dögum. Það er undrar mig ekkert að íbúar Vestfjarða skuli horfa vonaraugum til þess að slík stóriðja verði reist þar. Gersamlega misheppnuð fiskveiðistjórnun byggð á heimskulegu kvótakerfi sem hefur leikið byggðir Vestfjarða afar grátt svo nú stefnir í algert hrun byggða og mannlífs - eins og reyndar víðar í sjávarbyggðum landsins.

Ég hef lengi haft nokkurn áhuga á þróun mála í Norðurhöfum, það er Íshafinu norðan Íslands og svæðum sem að því liggja. Hugsanleg olíuvinnsla og önnur náttúrunýting fellur þar undir. Í umræðum um olíuhreinsunarstöð á Íslandi hef ég saknað upplýsinga um hvaða olíu eigi í raun að vinna í slíkri stöð. Talað er um gífurlegar fjárfestingar en þær eru til lítils ef engin er olían. Nú hefur engin olía fundist við Grænland, Ísland eða Jan Mayen að ég best veit. Hvað þá að að fyrir liggi hvernig eigi að ná henni upp. Hið sama má segja um Barentshaf og Svalbarða. Í Barensthafi stendur hins vegar til að hefja umfangsmikla gasvinnslu. Öll olíu- og gasvinnsla á þessum svæðum er mjög viðkvæmt og umdeilt mál.

Nú geri ég ráð fyrir að viðskiptahugmyndin á bak við olíuhreinsunarstöð fyrir vestan sé að vinna úr hráefni sem aflað sé eystra og þá einkum í norðanverðu Rússlandi. Varla ætla menn að byggja olíuhreinsunarstöð á hugsanlegu hráefni úr jarðlögum Norður Íshafsins sem enn er ekki vitað hvort sé til eða vinnanlegt? Hugmyndin er svo væntanlega að afurðir hér á landi yrðu framleiddar fyrir markaði vestan hafs og þá einkum í Norður Ameríku. Varla ætla menn annars að flytja olíu þúsundir sjómílna yfir hálft Norður Atlantshaf á öllum árstímum. Eða hvað?

Í gær sá ég frétt á vef Siglingastofnunar sem vakti með mér spurningar. Hún er hér. Þarna kemur fram að flutningur á olíafurðum með skipum frá Norðvestur Rússlandi til Vesturheims er miklu minni en menn áttu von á. Þarna koma fram ýmsar staðreyndir sem vert er að staldra við.

Sennilega er það mikil áhætta að ætla að treysta á að olíuflutningar frá Norðvestur Rússlandi muni í framtíðinni standa undir stórfelldri olíuhreinsun á Íslandi. Olía og gas - sala þessara hráefna og vinnsla úr þeim - er mjög lituð af pólitík enda um mjög mikilvægar náttúruauðlindir að ræða. Náttúruauðlindir sem knýja hagkerfi heimsins. Rússar eru að græða mikla peninga þessi misserin þar sem olíuverð er í hæstu hæðum á heimsmarkaði. Þeir nota þessi auðæfi meðal annars til að byggja upp hernaðarmátt sinn á nýjan leik eftir hrun í lok Kalda stríðsins.

Það eru auknar viðsjár milli Rússa og Bandaríkjanna. Nefna má eldflaugamál í Austur Evrópu og afskipti Bandaríkjanna af málefnum tengdum Kosovo á Balkanskaga í þessu sambandi. Eitt af þeim vopnum sem Rússar geta beitt á Bandaríkin er að skrúfa fyrir sölu á olíu þangað í framtíðinni. Nægir markaðir eru eflaust fyrir hana í Evrópu og Asíulöndum eins og Kína.

Það mætti velta sér upp úr þessu öllu saman í löngu máli en ég læt hér staðar numið og spyr:

Hvaða olíu ætla menn að vinna fyrir Vestan, og geta þeir gulltryggt aðföng hennar til langrar framtíðar?



1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rússneski gasframleiðandinn GASPROM mun sjálfsagt koma að þessu og redda íslensku bönkunum. Og bæta síðan Íslandi í eignasafnið sitt.