
Fréttin um opnun frægeymslunnar á Svalbarða er ótrúlega spennandi.
Hún kemur róti á hugann.
Ég get ekki að því gert. Mér finnst sem það hvíli yfir þessu einhvers konar dómsdagstilfinning. Mannkynið kemur milljörðum plöntufræja fyrir í gömlum kolanámum á hjara veraldar, þar sem sífreri ríkir.
Kannski er þessi tilfinning hjá mér vegna þess að ég þekki sæmilega til á Svalbarða. Hef komið þangað all oft. Svalbarði er mjög sérstakur staður. Þetta er á endimörkum hins byggilega heims.
En samt ekkert mjög langt frá Íslandi. Ég hef aldrei skilið hvers vegna við Íslendingar höfum ekki manndóm í okkur til að hasla okkur völl á Svalbarða, til að mynda með því að stunda þar vísindastörf. Til þess höfum við fullan rétt samkvæmt Svalbarðasamningnum.
En aftur að frægeymslunni. Hún er eins og Örkin hans Nóa. Nú erum við farin að safna fræjum plantna til að eiga ef illa fer. Hvað er svo næst? Eigum við til dæmis að safna og geyma í iðrum jarðar púpur skordýra, frjóvguð hrogn fiska, frjóvguð egg fugla og spendýra?
Fósturvísa mannvera?
Ég ætla ekki að svara þessu - en einhver fleiri en ég hjóta að velta þessu fyrir sér.
Annars duttu mér þessar ljóðlínur í hug í gær þegar ég var að skoða fréttir um frægeymsluna á Spitzbergen. Þetta er fallegt:
Til eru fræ, sem fengu þennan dóm:
Að falla í jörð, en verða aldrei blóm.
Eins eru skip, sem aldrei landi ná,
og iðgræn lönd, er sökkva í djúpin blá,
og von sem hefir vængi sína misst,
og varir, sem að aldrei geta kysst,
og elskendur, sem aldrei geta mæst
og aldrei geta sumir draumar ræst.
Til eru ljóð, sem lifna og deyja í senn,
og lítil börn, sem aldrei verða menn.
(Davíð Stefánsson)
3 ummæli:
Eiga Íslendingar fræ í þessum fræbanka? Ég hef hvergi fundið uppl. um það.
Ef svo, hver hefur ráðstöfunarréttinn á þeim fræjum?
Hvenær má taka fræin aftur út? eftir 100 ár? eða 500 ár?
Bara smá pælingar...
Til eru fræ og Þitt fyrsta bros er góð lagatvenna!
http://fjoz.wordpress.com/2008/02/26/til-honnu-birnu-kristjansdottur/
Besta lag íslandssögunnar og passar vel fyrir framtíð þjóðarinnar.
Skrifa ummæli