fimmtudagur, 3. júlí 2008

Írskir dagar á Akranesi

Írskir dagar eru haldnir á Akranesi um helgina.

Þeim er þjófstartað í kvöld og svo fer allt á fulla ferð á morgun.

Þetta er mikil og frábær fjölskylduhátíð sem enginn er svikinn af að heimsækja.

Með því að smella hér má sjá dagkrána.

Sjálfur get ég ekki stillt mig um að rifja upp taktana hjá þessum snillingum hér. Þeir eru eflaust miður sín við tilhugsunina um að Íhaldið hafi rænt völdum á Skipaskaga.

En það stendur nú allt til bóta og styttist óðum í næstu sveitarstjórnarkosningar.

Og er ég svo farinn á Írska daga:

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæll.

Ég er 26 ára gamall starfsmaður í ferðaþjónustu. Ég á engin börn. Yrði ég ekki svikinn?

Mbk,
Drengur Óla Þorsteinsson
Af óæskilegum aldri
p.s. ég er með hreint sakavottorð og tjaldið mitt er snyrtilegt.

Nafnlaus sagði...

Frábær fjölskylduskemmtun? hmm
mbl í kvöld er með frétt frá ykkur skagamönnum.
Að sögn lögreglu var talsvert um að vísa þurfti ungu fólki frá sem reyndi að tjalda á tjaldstæðinu. Eins þurfti að hafa samband við töluverðan fjölda foreldra og biðja þá að sækja börn sín og unglinga.

Fjórir voru teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Í einu tilvikinu fannst við leit í bifreiðinni eitthvað magn fíkniefna en fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í gær og nótt. Að sögn lögreglu var í flestum tilvikum lítið magn gert upptækt. Tveir voru teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis.

Er þetta frábær fjölskyldukemmtun?
kv.
Páll H.

Nafnlaus sagði...

Þið hljótið að vera að grínast. Ástandið á Akranesi þessa helgi var eins og í sumabúðum aldraðra miðað við hvernig ástandið var í fyrra.

Nei, piltar. Ástandið á Akranesi þessa helgi er staðfesting á því að þessar reglur áttu rétt á sér.

Íbúi á Akranesi.